Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hildur Sverrisdóttir

Netfang: hildursverris@gmail.com

Hildur SverrisdóttirHildur Sverrisdóttir er lögfræðingur og öðlaðist nýverið réttindi til héraðsdómslögmanns en hún lauk lagaprófi frá Háskólanum í Reykjavík og stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð.

Hildur starfar sem lögfræðingur hjá 365 miðlum ehf. Áður hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri V-dags samtakanna sem vinna gegn ofbeldi á konum. Auk þess hefur hún starfað í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og hjá lögmannsstofunni Ambrose Appelbe Solicitors í London. 

Hildur var framkvæmdastjóri Reykjavík Dance Festival, alþjóðlegrar danshátíðar. Þá stýrði hún á sínum tíma Jafningjafræðslunni fyrir ÍTR og menntamálaráðuneytið í forvarnarstarfi gegn eiturlyfjaneyslu unglinga.

Hildur er fædd 22. október 1978, dóttir Rannveigar Jóhannsdóttur háskólakennara og Sverris Einarssonar heitins, sem var rektor Menntaskólans við Hamrahlíð.

Hildur býr á Ásvallagötu og sambýlismaður hennar er Teitur Björn Einarsson framkvæmdastjóri fiskvinnslunnar Eyrarodda hf. á Flateyri.

Núverandi nefndastörf á vegum Reykjavíkurborgar

Íþrótta- og tómstundaráð, varamaður
Skipulagsráð, varamaður
Umhverfis- og samgönguráð
Hverfisráð Vesturbæjar




Skipurit