Margrét Vilhjálmsdóttir
Margrét er fædd í Reykjavík 10. mars 1966. Hún er dóttir Sigríðar Erlu Sigurbjörnsdóttur kennara og Vilhjálms Auðuns Þórðarsonar flugstjóra. Margrét er gift Agli Heiðari Antoni Pálssyni leikstjóra sem á eina dóttur Sigríði Maríu Egilsdóttur, f. 1993, nemi. Þau búa á Sólvallagötu 48 Reykjavík og í Kaupmannahöfn.
Netfang: maggavil@simnet.is
Námsferill
Útskrifast úr Leikistarskóla Íslands 1994
Stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1986
Grunnskólapróf úr Æfingadeild Kennaraskólans (nú Háteigsskóli) 1982
Margrét stundaði tónlistarnám í fiðluleik frá 1971-1984 við m.a. Tónslistarskóla Reykjavíkur, Tónskóla Sigursveins og Nýja Tónlistarskólann.
Starfsferill
Margrét hefur starfað sem leikkona meðal annars við Þjóðleikhús Íslendinga og Borgarleikhúsið ásamt því að leikstýra eigin verkum á Listahátíð í Reykjavík, Gyðjunni í Vélinni 2007, Orbis terræ- ORA 2009. Hnykill 2009 var síðast leikstjórnarverk Margrétar í nóvember 2009.
Margrét hefur einnig unnið við kvikmyndir, útvarp og sjónvarp.
Margrét hefur einnig tekið þátt í náttúrubaráttu og frumkvöðlastarfi hreyfinga á borð við Hætta og Framtíðarlandið og stofnun þess 17. júní 2006. Framkvæmdarstýra náttúruverndartónleika í Laugardagshöll 7. janúar 2006 og aðstoð við framkvæmd á Náttúrutónleikum Bjarkar og Sigurrósar í Laugardal 2008.
Margrét vann sem unglingur ýmis störf þ.á.m við fiskvinnslu á Seyðisfirði, í vélsmiðju Seyðisfjarðar, við skúringar og þrif á Reykjavíkurflugvelli hjá Flugleiðum. Hlaðfreyja og síðar flugfreyja í fimm sumur hjá sama fyrirtæki.
Margrét var einnig starfstúlka í versluninni Fríðu Frænku.
Núverandi nefndarstörf á vegum Reykjavíkurborgar
Umhverfis- og samgönguráð