Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Björk Vilhelmsdóttir

Björk VilhelmsdóttirFædd 2. október 1963.

Björk býr að Depluhólum 9. Hún er fædd í Reykjavík og uppalin þar og á Blönduósi, dóttir Vilhelms Heiðars Lúðvíkssonar og Kristínar Pálsdóttur. Maki Bjarkar er Sveinn Rúnar Hauksson. Þau eiga fimm börn.

Netfang Bjarkar er bjork.vilhelmsdottir@reykjavik.is

Námsferill
Stúdentspróf af heilbrigðissviði frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti 1983
Starfsréttindanám í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands 1990
BA próf í uppeldisfræði frá Háskóla Íslands 1990
Diplóma í opinberri stjórnsýslu frá HÍ 2008

Starfsferill

Kokkur á Lyngey SF 61, janúar til maí 1984


Vann við umönnun aldraðra og fatlaðra á Héraðshæli Austur-Húnvetninga, á Borgarspítalanum og í heimaþjónustu hjá Félagsþjónustu Reykjavíkur með námi og í námsleyfum 1979–1984
Fangavörður í Hegningarhúsinu Skólavörðustíg 9 sumrin 1985, 1986 og 1987
Félagsráðgjafi hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar sumarið 1988 og árið 1989
Félagsráðgjafi á Stígamótum – samtökum kvenna gegn kynferðislegu ofbeldi 1990-1991
Framkvæmdastýra hjá kvennaráðgjöfinni 1992–1997
Félagsráðgjafi á Kvennadeild Landspítalans 1992–1997
Blindrafélagið 1997–2002

Almenn félagsstörf
Nemendaráð Fjölbrautaskólans í Breiðholti 1982–1983
Formaður Stúdentaráðs HÍ 1986
Í stjórn Fræðslusamtaka um kynlíf og barneignir 1995-1998
Formaður Bandalags háskólamanna 1998 – 2002
Varaformaður Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa 1992–1994
Formaður Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa 1998-2000

Pólitískur ferill
Formaður Félags vinstrimanna í HÍ 1985–1987
Í miðstjórn Alþýðubandalagins 1986–1988
Á framboðslista Alþýðubandalagsins í borgarstjórnarkosningunum 1986
Jafnréttisnefnd Reykjavíkur 1986–1988
Kosinn í borgarstjórn 2002


Núverandi nefndastörf á vegum Reykjavíkurborgar
Borgarráð
Velferðarráð, formaður
Stjórn Faxaflóahafna
Stjórn Strætó bs., varamaður
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar, formaður
Samstarfsnefnd Nuuk-Reykjavík-Þórshöfn
Fulltrúaráð SSH
Í stýrihópi um búsetuúrræði eldri borgara

Björk er með viðtalstíma í Tjarnargötu 12 eftir samkomulagi. Tekið er á móti viðtalsbeiðnum og símaskilaboðum í síma 411 4750.




Skipurit