Björk Vilhelmsdóttir

Netfang: bjork.vilhelmsdottir@reykjavik.is.
Björk fæddist 2. október 1963. Hún býr í Depluhólum 9. Hún er fædd í Reykjavík og er uppalin þar og á Blönduósi, dóttir Vilhelms Heiðars Lúðvíkssonar og Kristínar Pálsdóttur. Maki Bjarkar er Sveinn Rúnar Hauksson. Þau eiga fimm börn.
Námsferill
2008 Diplóma í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.
1990 BA – próf í uppeldisfræði frá HÍ.
1990 Starfsréttindanám í félagsráðgjöf frá HÍ.
1983 Stúdentspróf af heilbrigðissviði frá Fjölbrautarskólanum
í Breiðholti.
Starfsferill
1997 – 2002 Blindrafélagið.
1992 – 1997 Félagsráðgjafi á Kvennadeild Landspítalans.
1992 – 1997 Framkvæmdastýra Kvennaráðgjafarinnar.
1990 – 1991 Félagsráðgjafi á Stígamótum – samtökum kvenna gegn kynferðislegu ofbeldi.
Sumarið 1988 og árið 1989 Félagsráðgjafi hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Sumrin 1985, 1986 og 1987 Fangavörður í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg 9.
Janúar til maí 1984 Kokkur á Lyngey SF 61.
1979 – 1984 Vann á þessum árum með námi og í námsleyfum við umönnun aldraðra og fatlaðra á
Héraðshæli Austur-Húnvetninga, á Borgarspítalanum og í heimaþjónustu hjá
Félagsþjónustu Reykjavíkur.
Almenn félagsstörf
1998 – 2000 Formaður Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa.
1992 – 1994 Varaformaður Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa.
1998 – 2002 Formaður Bandalags háskólamanna.
1995 – 1998 Í stjórn Fræðslusamtaka um kynlíf og barneignir.
1986 Formaður Stúdentaráðs HÍ.
1982 – 1983 Í nemendaráði Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Pólitískur ferill
2002 – (nú) Kosin í borgarstjórn.
1986 – 1988 Í jafnréttisnefnd Reykjavíkur.
1986 Á framboðslista Alþýðubandalagsins í borgarstjórnarkosningum.
1986 – 1988 Í miðstjórn Alþýðubandalagins.
1985 – 1987 Formaður Félags vinstrimanna í HÍ.
Núverandi nefndastörf á vegum Reykjavíkurborgar
Borgarráð;
Velferðarráð, formaður;
Stjórn Faxaflóahafna;
Stjórn Strætó bs., varamaður;
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar, formaður;
Fulltrúaráð SSH;
Í stýrihópi um búsetuúrræði eldri borgara.
Viðtalstími
Björk er með viðtalstíma í Tjarnargötu 12 eftir samkomulagi. Tekið er á móti viðtalsbeiðnum og símaskilaboðum í síma 411 4750.