Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Dagur B. Eggertsson

Dagur B. Eggertsson

Netfang: dagur.b.eggertsson@reykjavik.is.

Dagur fæddist 19. júní 1972. Hann  er fæddur í Osló en uppalinn í Árbæjarhverfi, sonur Eggerts Gunnarssonar dýralæknis og Bergþóru Jónsdóttur lífefnafræðings. Maki Dags er Arna Dögg Einarsdóttir læknir á Landspítalanum - háskólasjúkrahúsi. Þau eiga eina dóttur, Ragnheiði Huldu og synina Steinar Gauta og Eggert.


Námsferill
2005                 Meistarapróf í mannréttindum og alþjóðalögum
                         frá Háskólanum í Lundi, Svíþjóð.
1999                 Embættispróf í læknisfræði frá Háskóla Íslands.
1992                 Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík.
                         Árbæjarskóli.
 

Starfsferill
2003 – 2004    Læknir á slysa- og bráðasviði Landspítalans – háskólasjúkrahúsi.
Sumarið 2002   Læknir á sýkladeild Landsspítalans – háskólasjúkrahúsi.
Sumarið 2001    Heilsugæslulæknir á Ísafirði.
2000 – 2001     Aðstoðarlæknir á Landsspítalanum –  háskólasjúkrahúsi.                        
                         Höfundur ævisögu Steingríms Hermannssonar, I-III (útg. 1998, 1999, 2000).
1995 – 1998     Dagskrárgerðarmaður á Ríkisútvarpinu, rás 1 (Í Víðsjá og á
                         fimmta tug þátta um vísindi og vísindamenn).
1995 – 1996     Framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs námsmanna.
1994 – 1995     Starfandi formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
                         Sumarið 1993 Blaðamaður á DV
                         Ýmis störf, s.s. við dýrahald og húsaviðgerðir á unglingsárum.

Almenn félagsstörf
1997 – 1999     Í stjórn Félagsstofnunar stúdenta.
1995 – 1997     Í nefnd um endurskoðun laga um LÍN.
1994 – 1995     Formaður Stúdentaráðs HÍ. 
1994 – 1996     Í stúdentaráði fyrir Röskvu, samtök félagshyggjufólks.
1991 – 1992     Formaður félags framhaldsskólanema.
 

Pólitískur ferill 
Kosinn í borgarstjórn Reykjavíkur fyrir Reykjavíkurlista í maí 2002.

Núverandi nefndastörf á vegum Reykjavíkurborgar
Borgarráð;
Stjórn Faxaflóahafna sf., varamaður;
Samstarfssjóður Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar;
Almannavarnanefnd.

Viðtalstími
Hægt er að panta viðtalstíma við Dag í síma 411-4706.