Dagur B. Eggertsson

Netfang: dagur.b.eggertsson@reykjavik.is.
Dagur fæddist 19. júní 1972. Hann er fæddur í Osló en uppalinn í Árbæjarhverfi, sonur Eggerts Gunnarssonar dýralæknis og Bergþóru Jónsdóttur lífefnafræðings. Maki Dags er Arna Dögg Einarsdóttir læknir á Landspítalanum - háskólasjúkrahúsi. Þau eiga eina dóttur, Ragnheiði Huldu og synina Steinar Gauta og Eggert.
Námsferill
2005 Meistarapróf í mannréttindum og alþjóðalögum
frá Háskólanum í Lundi, Svíþjóð.
1999 Embættispróf í læknisfræði frá Háskóla Íslands.
1992 Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík.
Árbæjarskóli.
Starfsferill
2003 – 2004 Læknir á slysa- og bráðasviði Landspítalans – háskólasjúkrahúsi.
Sumarið 2002 Læknir á sýkladeild Landsspítalans – háskólasjúkrahúsi.
Sumarið 2001 Heilsugæslulæknir á Ísafirði.
2000 – 2001 Aðstoðarlæknir á Landsspítalanum – háskólasjúkrahúsi.
Höfundur ævisögu Steingríms Hermannssonar, I-III (útg. 1998, 1999, 2000).
1995 – 1998 Dagskrárgerðarmaður á Ríkisútvarpinu, rás 1 (Í Víðsjá og á
fimmta tug þátta um vísindi og vísindamenn).
1995 – 1996 Framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs námsmanna.
1994 – 1995 Starfandi formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
Sumarið 1993 Blaðamaður á DV.
Ýmis störf, s.s. við dýrahald og húsaviðgerðir á unglingsárum.
Almenn félagsstörf
1997 – 1999 Í stjórn Félagsstofnunar stúdenta.
1995 – 1997 Í nefnd um endurskoðun laga um LÍN.
1994 – 1995 Formaður Stúdentaráðs HÍ.
1994 – 1996 Í stúdentaráði fyrir Röskvu, samtök félagshyggjufólks.
1991 – 1992 Formaður félags framhaldsskólanema.
Pólitískur ferill
Kosinn í borgarstjórn Reykjavíkur fyrir Reykjavíkurlista í maí 2002.
Núverandi nefndastörf á vegum Reykjavíkurborgar
Borgarráð;
Stjórn Faxaflóahafna sf., varamaður;
Samstarfssjóður Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar;
Almannavarnanefnd.
Viðtalstími
Hægt er að panta viðtalstíma við Dag í síma 411-4706.