Hanna Birna Kristjánsdóttir

Hanna Birna Kristjánsdóttir er fædd þann 12. október árið 1966. Hún er fædd og uppalin í Hafnarfirði, dóttir Aðalheiðar J. Björnsdóttur og Kristjáns Ármannssonar. Maki Hönnu Birnu er Vilhjálmur Jens Árnason heimspekingur og eiga þau tvær dætur.
Netfang Hönnu Birnu er hanna.birna.kristjansdottir@reykjavik.is
Námsferill
M.Sc. gráða í alþjóðlegum og evrópskum stjórnmálum frá Edinburgh University 1993.
BA-gráða í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 1991.
Stúdentspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1986.
Verslunarskólapróf frá Verslunarskóla Íslands 1984.
Starfsferill
Borgarstjóri frá 21. ágúst 2008-15. júní 2010.
Forseti borgarstjórnar frá 24. janúar 2008-21. ágúst 2008.
Formaður skipulagsráðs frá 2006-2008.
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 2002.
Aðstoðarframkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins frá 1999-2006.
Framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna frá 1995-1999.
Deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneytinu frá 1994-1995.
Starfsmaður Öryggismálanefndar frá 1990-1991.
Félagsstörf og nefndasetur
Formaður almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins frá 2008.
Formaður stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 2008.
Varamaður í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) frá 2007-2008.
Í stjórn Faxaflóahafna frá 2007-2008.
Varamaður í stjórn skipulagssjóðs frá 2006-2007.
Í stjórnkerfisnefnd frá 2006-2007.
Í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá 2008.
Varamaður í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu 2006-2007.
Fulltrúi í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 2006.
Í skipulagsráði frá 2005-2008.
Í framkvæmdaráði frá 2005-2006.
Í menntamálanefnd 2005-2006.
Varamaður í stjórn Landsvirkjunar frá 2004-2006.
Í stjórn Fasteignastofu frá 2003-2005.
Í borgarráði frá 2003-2008.
Í hverfisráði Árbæjar 2002-2006. Í skipulags- og byggingarnefnd frá 2002-2005.
Í fræðsluráði frá 2002-2005.
Í menningarmálanefnd frá 2002-2003.
Varamaður í borgarráði frá 2002-2003.
Í stjórn Höfuðborgarstofu frá 2002.
Formaður nefndar menntamálaráðherra um mótun símenntunarstefnu frá1997-1998.
Í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna frá 1995-1999.
Í stjórn hverfafélags sjálfstæðismanna í Austurbæ og Norðurmýri frá 1995-1996.
Ritstörf
Ýmsar greinar um stjórnmál í blöð, tímarit og bækur.
Nefndir og ráð:
Borgarráð
Stjórn Faxaflóahafna sf.
Fulltrúaráð SSH