Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Kjartan Magnússon

Kjartan Magnússon

Fæddur 5. desember 1967.

Kjartan býr að Hávallagötu 42. Hann er fæddur og uppalinn í Reykjavík, sonur Magnúsar Þórðarsonar framkvæmdastjóra og Áslaugar Ragnars rithöfundar.

Netfang Kjartans er kjartan.magnusson@reykjavik.is

Námsferill
Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1988.
Stundaði nám í sagnfræði við Háskóla Íslands 1990-93.

Starfsferill
Blaðamaður á Morgunblaðinu 1991-1999.
Borgarfulltrúi frá 1999 auk blaðamennsku og ráðgjafarstarfa.
Stjórnarformaður IntelScan örbylgjutækni 2000 - 2004.

Pólitískur ferill
Í stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, 1989-93, gjaldkeri 1989-91, formaður 1991-93.
Í stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík 1991-93.
Varaborgarfulltrúi í Reykjavík 1994-99.
Í stjórn Strætisvagna Reykjavíkur 1994-2000.
Í húsnæðisnefnd Reykjavíkur 1995-98.
Í heilbrigðisnefnd Reykjavíkur 1996-98.
Í jafnréttisnefnd Reykjavíkur 1994-2002.
Í stjórn Vinnuskóla Reykjavíkur 1998-2002.
Í samstarfsnefnd um löggæslumálefni í Reykjavík 1998-2002.
Í stjórn Alþjóðahússins ehf. 2001-2003.

Núverandi nefndastörf á vegum Reykjavíkurborgar
Íþrótta- og tómstundaráð
Menntaráð
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur
Stjórn Faxaflóahafna sf., varamaður
Formaður nefndar um gerð umferðaröryggisáætlunar fyrir Reykjavík 2002-2007

Kjartan er með viðtalstíma í Ráðhúsi Reykjavíkur á mánudögum kl. 14:30 - 15:00.
Tekið er á móti tímapöntunum hjá upplýsingaþjónustu Ráðhússins í síma 411 4750.
Þá er Kjartan einnig með viðtalstíma í Valhöll, Háaleitisbraut 1, eftir samkomulagi, tímapantanir í síma 515 1730.