Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Oddný Sturludóttir

Oddný SturludóttirNetfang: oddny.sturludottir@reykjavik.is.
Heimasíða: http://www.oddny.is.

Oddný Sturludóttir fæddist í Reykjavík 12. ágúst 1976 . Hún ólst upp í Árbænum en býr í 101 Reykjavík í dag. Foreldrar hennar eru Sturla Þengilsson, hugbúnaðarsérfræðingur og María Norðdahl, kennari, nuddari og starfsmaður sjúkrasjóðs kennara. Oddný á tvö börn, Kára Daníel, fæddan 2003, og Margréti Maríu, fædda 2005.

Námsferill
          Dvaldi einn vetur í framhaldsnámi í píanóleik hjá prófessor
          Shoshana Rudiakov í Tónlistarháskólanum  í  Stuttgart.
2002  Píanókennarapróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík.
1996  Stúdentspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð.

Starfsferill
Píanókennsla við Tónlistarskólann í Reykjavík, Tónskóla Sigursveins og Tónlistarskólann í Grafarvogi. Oddný hefur sinnt einkakennslu frá árinu 1999.

Blaðamennska hjá Fróða, ýmis ritstörf fyrir Eddu – Útgáfu, meðal annars þýðing bókarinnar Móðir í hjáverkum (2005). Ýmis ritstörf fyrir auglýsingastofur og pistlaskrif í fjölmörg blöð og tímarit. Skrifaði bókina Dís (2000), ásamt Birnu Önnu Björnsdóttur og Silju Hauksdóttur. Þær skrifuðu einnig handrit að bíómyndinni Dís sem frumsýnd var árið 2004.

Oddný hefur starfað við dagskrárgerð í útvarpi, bóksölu, mjaltir, tónlist, framreiðslu, ljósa- og hljóðstjórn í leikhúsi, leikjanámskeið, ritstörf og ræstingar í Reykjavík, á Mýrunum og í Dublin á Írlandi.

Núverandi nefndarstörf á vegum Reykjavíkurborgar
Borgarráð,
Menntaráð,
Stjórn Sorpu bs.

Oddný á sæti í: 
skólanefnd Menntaskólans við Hamrahlíð,
stjórn Landnemans - félags áhugafólks um innflytjendur og fjölmenningu,
ráðgjafahópi Norræna menningarsjóðsins ,,Nye Nordboere“,
stjórn Rannsóknarstofu um skóla án aðgreiningar,
stjórn Hugmyndahúss háskólanna.
 
Oddný er formaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar og formaður borgarmálaráðs Samfylkingarinnar.

Fyrri nefndastörf:
Menntaráð, formaður;
Stjórn Miðborgar Reykjavíkur, formaður.

Viðtalstími
Oddný er með viðtalstíma á föstudögum frá kl. 9:30 og 11:45.
Tekið er á móti tímapöntunum á skrifstofu borgarfulltrúa í síma 411 4750.