Oddný Sturludóttir
Oddný Sturludóttir er fædd í Reykjavík þann 12. ágúst árið 1976 . Hún ólst upp í Árbænum en býr í 101 Reykjavík í dag. Foreldrar hennar eru Sturla Þengilsson, hugbúnaðarsérfræðingur og María Norðdahl, kennari, nuddari og starfsmaður sjúkrasjóðs kennara. Oddný á tvö börn, Kára Daníel (f. 2003) og Margréti Maríu (f. 2005).
Netfang: oddny.sturludottir@reykjavik.is
Heimasíða: http://www.oddny.is/
Námsferill
Stúdentspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1996.
Píanókennarapróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2002.
Dvaldi einn vetur í framhaldsnámi í píanóleik hjá Professor Shoshana Rudiakov í Tónlistarháskólanum í Stuttgart.
Starfsferill
Píanókennsla við Tónlistarskólann í Reykjavík, Tónskóla Sigursveins og Tónlistarskólann í Grafarvogi. Oddný hefur sinnt einkakennslu frá árinu 1999.
Blaðamennska hjá Fróða, ýmis ritstörf fyrir Eddu-Útgáfu, meðal annars þýðing bókarinnar Móðir í hjáverkum (2005). Ýmis ritstörf fyrir auglýsingastofur og pistlaskrif í fjölmörg blöð og tímarit. Skrifaði bókina Dís, (2000) ásamt Birnu Önnu Björnsdóttur og Silju Hauksdóttur. Þær skrifuðu einnig handrit að bíómyndinni Dís sem frumsýnd var árið 2004.
Oddný hefur starfað við dagskrárgerð í útvarpi, bóksölu, mjaltir, tónlist, framreiðslu, ljósa- og hljóðstjórn í leikhúsi, leikjanámskeið, ritstörf og ræstingar í Reykjavík, á Mýrunum og í Dublin á Írlandi.
Núverandi nefndarstörf á vegum Reykjavíkurborgar
Borgarráð
Menntaráð
Stjórn Sorpu bs.
Oddný á sæti í:
Skólanefnd Menntaskólans við Hamrahlíð
Stjórn Landnemans - félags áhugafólks um innflytjendur og fjölmenningu
Ráðgjafahópi Norræna menningarsjóðsins ,,Nye Nordboere"
Stjórn Rannsóknarstofu um skóla án aðgreiningar
Stjórn Hugmyndahúss háskólanna.
Oddný er formaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar og formaður borgarmálaráðs Samfylkingarinnar.
Fyrri nefndarstörf:
Menntaráð, formaður
Stjórn Miðborgar Reykjavíkur, formaður
Skrifstofa og viðtalstími:
Oddný er með viðtalstíma á föstudögum frá kl. 9:30 og 11:45.
Tekið er á móti tímapöntunum hjá upplýsingaþjónustu Ráðhússins í síma 411 4750.