Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir

Fædd 5. september 1972.  Þorbjörg Helga býr að Bjarmalandi 23.  Hún er fædd í Reykjavík, dóttir Ólafar G. Björnsdóttur hjúkrunarfræðings og Vigfúsar Árnasonar endurskoðanda.  Eiginmaður Þorbjargar Helgu er Hallbjörn Karlsson verkfræðingur.  Þau eiga tvö börn.

Netfang Þorbjargar er thorbjorghelga@reykjavik.is og vefsíða hennar er www.thorbjorg.is

Námsferill
Stúdent frá Verslunarskóla Íslands 1992
B.A. próf í uppeldis- og menntunarfræði frá HÍ 1998
Ársnám í sálarfræði við University of Washington í Seattle 1997
M.Ed. próf í Námssálarfræði við University of Washington í Seattle 1999
Námskeið við endurmenntun, Stjórnendaskóla HR og INSEAD í Frakklandi.

Starfsferill
Faglegur ráðgjafi ráðherra í skólamálum, Menntamálaráðuneytið 2004-2006
Verkefnastjóri í Stjórnendaskóla Háskólans í Reykjavík, Háskólinn í Reykjavík 1999-2004
Verkefnastjóri átaksins Auður í krafti kvenna 2000-2003
Stundakennsla við Háskólann í Reykjavík 2000-2003
Stundakennsla við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands 2002-
Aðstoðarmaður prófessors, University of Washington, Seattle

Almenn félagsstörf
Í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
Penni  og fyrrverandi ritstjórnarmeðlimur á vefritun Tíkin.is
Varaformaður SUS 2002-2004
Formaður evrópuverkefnisins Ungt fólk í Evrópu
Varaformaður nýsköpunarsjóðs námsmanna
Háskólaráð Kennaraháskóla Íslands
Grein birt í Research in Adolesence 2004 ásamt prófessor

Pólitískur ferill
2003-2006 Stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur.
2005-2006 Í menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar. 
2002-2004 Aðalmaður í stjórn Sorpu bs, Í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
2002-2006 Starf með borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna í Reykjavík.
2002- Nýsköpunarsjóður námsmanna.  Varaformaður.
2006- 6. sæti á lista borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.


Núverandi nefndarstörf á vegum Reykjavíkurborgar
Borgarstjórn, varaforseti
Menningar- og ferðamálaráð
Menntaráð
Leikfélag Reykjavíkur, hússtjórn

Í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur,
Stjórn Faxaflóahafna sf.
Fulltrúaráð Eirar, varamaður