Úrræði sem í boði er að hálfu ríkis, borgar og félagasamtaka
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur kortlagt úrræði sem í boði eru fyrir þá sem eiga við erfiðleika að etja og leita aðstoðar. Fyrst er talin þjónusta Velferðarsviðs og svo þjónusta á vegum annarra stofnana og félagasamtaka.
Velferðarsvið rekur sex þjónustumiðstöðvar í hverfum Reykjavíkur og er hlutverk þeirra að veita Reykvíkingum þverfaglega og samræmda þjónustu um persónuleg málefni, ráðgjöf við starfsfólk leik og grunnskóla og aðra faglega þjónustu til stofnana og félagasamtaka í hverfunum. Þjónustumiðstöðvar sinna einnig forvarnarmálum og ýmsum menningartengdum samfélagsverkefnum en samstarf við stofnanir og félagasamtök skipar stóran sess í starfi þjónustumiðstöðva.
• Þjónustumiðstöð Árbæjar, Grafarholts og Úlfarsárdals, Hraunbæ 115,
sími: 411 1200, www.arbaer.is
• Þjónustumiðstöð Breiðholts, Álfabakka 12, sími: 411 1300, www.breidholt.is
• Miðgarður, Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, Langarima 21, sími: 411 1400, www.grafarvogur.is, www.midgardur.is
• Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, Síðumúla 39, sími: 411 1500,
www.velferdarsvid.is/laugardalur
• Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Skúlagötu 21, sími: 411 1600,
www.velferdarsvid.is/midborghlidar
• Vesturgarður, Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Hjarðarhaga 45 – 47, sími: 411 1700, www.vesturbaer.is, http://www.vesturgardur.is
Á þjónustumiðstöðvum er hægt að sækja um:
• Fjárhagsaðstoð stendur þeim til boða sem hafa tekjur og eignir undir ákveðnum
viðmiðunarmörkum og er hún veitt þeim sem ekki geta séð sér og sínum farborða ánaðstoðar. Aðstoðin er óháð barnafjölda og kostnaði vegna húsnæðis. Einnig er heimilt að veita sérstaka fjárhagsaðstoð til foreldra sem hafa tekjur sem eru við eða lægri en grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar, til að greiða fyrir þátttöku barna í félags-og tómstundastarfi, sumardvöl, frístundaheimili, skólamáltíðir og leikskóla.
• Félagslega heimaþjónusta stendur þeim til boða sem ekki geta séð hjálparlaust um
heimilishald og persónulega umhirðu vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, veikinda,
barnsburðar eða fötlunar. Þjónustan getur falist í félagslegum stuðningi, aðstoð við
persónulega umhirðu og/eða aðstoð við heimilishald. Einnig er hægt að sækja um
heimsendingu matar.
• Húsaleigubætur standa leigjendum íbúðarhúsnæðis til boða að uppfylltum skilyrðum um
lögheimili, leigusamning og tekjur. Sérstakar húsaleigubætur eru ætlaðar þeim sem búa við
erfiðar félags- og fjárhagslegar aðstæður. Úthlutun sérstakra húsaleigubóta er byggð á mati á
aðstæðum umsækjanda.
• Félagslegar leiguíbúðir eru ætlaðar Reykvíkingum sem búa við mjög erfiðar félags- og
fjárhagsaðstæður.
• Þjónustuíbúðir fyrir aldraða eru ætlaðar fólki sem þarf meiri aðstoð og stuðning en hægt er að veita í heimahúsi en heilsufar ekki orðið það slæmt að þörf er fyrir hjúkrunarheimili.
• Ýmis stuðningsúrræði s.s. liðveislu fyrir fatlaða, persónulega ráðgjöf og stuðningsfjölskyldur fyrir börn.
• Leikskóladvöl. Einnig er hægt að fá upplýsingar um dagforeldra í hverfinu.
• Aksturs- og ferðaþjónusta fyrir aldraða og fatlaða fyrir þá sem geta vegna fötlunar sinnar ekki notað almenningsvagnaþjónustu og hafa ekki aðgang að eigin farartæki.
Ráðgjöf á þjónustumiðstöðvum
Fagfólk sem starfar hjá þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar veitir einstaklingum og fjölskyldum
ráðgjöf. Markmið með ráðgjöfinni er að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál
og stuðning vegna félagslegs og persónulegs vanda. Einnig geta ráðgjafar veitt upplýsingar um
möguleika á annarri þjónustu svo og vísað fólki í þau úrræði sem henta hverjum og einum.
Reykvíkingum eldri en 16 ára stendur einnig til boða ókeypis náms- og starfsráðgjöf.
Ráðgjöf tekur m.a. til:
• Atvinnuleysis
• Áfengis- og vímuefnavanda
• Fjárhagsvanda
• Fjölskylduvanda
• Fötlunar
• Húsnæðisvanda
• Málefna barna og ungmenna
• Málefna útlendinga
• Náms- og starfsráðgjafar
• Veikinda
• Öldrunar
Félagmiðstöðvar Velferðarsviðs
Félagsmiðstöðvar eru 16 talsins á vegum Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og eru þær opnar
almenningi og fólki á öllum aldri. Opið er alla virka daga. Margvíslegt félagsstarf er í boði og má þar
nefna listasmiðju, leikfimi, spilamennsku og tréskurð. Dagskrá félagsmiðstöðva er auglýst, m.a. á
vefsíðu Velferðarsviðs www.velferd.is og í Morgunblaðinu, Staður og stund www.mbl.is/folk.
Heitur matur gegn vægu gjaldi er í boði á félagsmiðstöðvum í hádeginu.
Félagsmiðstöðvar Velferðarsviðs eru eftirfarandi:
Aflagranda 40, sími: 411 2700
Árskógum 4, sími: 535-2700
Bólstaðarhlíð 43, sími: 535-2760
Dalbraut 18-20, sími: 588-9533
Dalbraut 21-27, sími: 568-5377
Furugerði 1, sími: 553-6040
Gerðuberg 3-5, sími: 575 7700
Hraunbæ 105, sími: 587-2888
Hvassaleiti 56-58, sími: 535-2720
Hæðargarði 31, sími: 568-3110
Langahlíð 3, sími: 552-4161
Lindargata 59, sími: 411-9450
Norðurbrún 1, sími: 568-69604
Seljahlíð, Hjallaseli 55, sími: 540 2400
Sléttuvegur 11, sími: 568-2586
Vesturgata 7, sími: 535-2740
Skóla- og sérfræðiþjónusta fyrir börn og unglinga
Á þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar er starfandi hópur fagfólks skipaður sálfræðingum, félagsráðgjöfum og sérkennsluráðgjöfum sem veitir íbúum og skólum hverfisins þverfaglega ráðgjöf og stuðning til að mæta sérþörfum barna og fjölskyldna þeirra. Sérfræðiþjónusta skóla veitir ráðgjöf til starfsfólks skóla, foreldra og nemenda eftir þörfum. Þarfir barnanna geta verið afar mismunandi, allt frá alvarlegri fötlun til vægari erfiðleika, eða til einhvers annars sem hefur áhrif á nám og aðlögun í skóla. Erfiðleikarnir snúa oft að skerðingu á færni barna til námsástundunar, samskipta og hegðunar.
Ef áhyggjur eru af uppeldisaðstæðum barna er leitað til Barnaverndar Reykjavíkur sem hefur það hlutverk að tryggja að reykvísk börn, sem búa við óviðunandi aðstæður, fái nauðsynlega aðstoð.
Óviðunandi aðstæður geta skapast vegna vanrækslu, vanhæfni eða framferðis foreldra, eða ef óttast
er að barn stefni heilsu sinni eða þroska í hættu með hegðun sinni. Hópur fagfólks er starfandi á
Barnavernd Reykjavíkur og er lögð áhersla á að styrka fjölskyldur í uppeldishlutverki sínu og beita
úrræðum til verndar einstökum börnum þegar það á við.
• Skrifstofa Barnaverndar Reykjavíkur er í Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík.
• Sími: 411 1111. Einnig er hægt að hringja í 112 sem tekur við tilkynningum um slæman
aðbúnað barna og sinnir bráðatilvikum vegna barnaverndarmála allan sólarhringinn.
• www.velferdarsvid.is
• barnavernd@reykjavik.is
Tómstundir barna og unglinga
Frístundamiðstöðvar fyrir unglinga eru 6 talsins á vegum Reykjavíkurborgar, www.itr.is. Vettvangur starfsemi frístundamiðstöðva er frítími allra borgarbúa, en megináherslan er lögð á barna- og unglingastarf. Frístundamiðstöðvarnar sjá um rekstur félagsmiðstöðva og frístundaheimila í sínu hverfi.
Félagsmiðstöðvar í Reykjavík eru 20 talsins og er megináhersla á starf fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára, www.itr.is.
Frístundaheimilin eru við alla grunnskóla Reykjavíkurborgar og eru þau alls 35, www.itr.is.
Frístundaheimilin bjóða upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna
lýkur.
Íþróttafélögin bjóða börnum og unglingum upp á fjölbreyttar íþróttir. Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðum félaganna.
Nám - símenntun - fullorðinsfræðsla
Námsflokkar Reykjavíkur, www.namsflokkar.is, sinna þeim sem minnsta formlega menntun hafa á margvíslegan hátt:
• Náms- og starfsráðgjöf
• Sérkennsla í lestri og skrift
• Grunnskólanám fyrir fólk eldra en 16 ára
• Undirbúningsnámi fyrir framhaldsskóla
• Ýmis lengri og styttri fræðsluverkefni í samstarfi við aðra
• Íslenskukennsla fyrir útlendinga í samvinnu við aðrar fræðslustofnanir
Mímir-símenntun, www.mimir.is, er einkahlutafélag í eigu Alþýðusambands Íslands sem starfar á sviði fullorðinsfræðslu og starfsmenntunar. Meginmarkmið Mímis-símenntunar er að bjóða upp á
nám fyrir fullorðna, þróa námsleiðir og hvetja fólk á vinnumarkaði til símenntunar og starfsþróunar.
Hjá Mími er unnið markvisst að því að efla færni fólks og bæta þannig stöðu þess á vinnumarkaði.
Mímir fylgir gæðakerfi og gæðamati sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur þróað og leggur áherslu
á kennsluaðferðir sem henta fullorðnu fólki og skipulagningu náms sem tekur mið af þörfum vinnandi
fólks sem og atvinnulífinu.
Miðstöð símenntunar – Námsflokkar Hafnarfjarðar, www.nhms.is, veita almenningi tækifæri á að efla grunnmenntun sína og stuðla að aukinni þátttöku fólks í námi og hagnýtri fræðslu.
Impra er miðstöð upplýsinga og leiðsagnar fyrir frumkvöðla og lítil fyrirtæki. Impra veitir öllum
frumkvöðlum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi leiðsögn.
Háskóli Íslands, www.hi.is, býður upp á fjölbreytta fyrirlestra, bæði í hádeginu og um eftirmiðdaginn, sjá nánar á vefsíðu skólans. Aðgangur er ókeypis.
Endurmenntun Háskóla Íslands, www.endurmenntun.is. Hlutverk Endurmenntunar Háskóla Íslands er að efla hæfni og þekkingu fólks í starfi og einkalífi. Meginviðfangsefni Endurmenntunar er símenntun á háskólastigi. Flest námskeið á vegum stofnunarinnar eru 4-25 klukkustundir en allmörg ná yfir heilt misseri.
Háskólinn í Reykjavík, www.ru.is, er með grunnnámskeið í íslensku fyrir útlendinga. Kennslan fer fram á ensku og íslensku og fá nemendur Listaháskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands sérstakan afslátt á þetta námskeið. Gerð er sú krafa að nemendur séu með stúdentspróf eða sambærilega menntun. Háskólinn í Reykjavík býður einnig upp á fjölbreytta fyrirlestra í hádeginu og umeftirmiðdaginn. Dagskrána er að finna á vefsíðu skólans.
Opni Háskólinn í Reykjavík, www.opnihaskolinn.is, sér um TÆKIFÆRI, sem er samstarfsverkefni stéttarfélaga, aðila vinnumarkaðs, opinberra aðila og háskóla. Stéttarfélög og Opni háskólinn í HR bjóða félagsmönnum aðgang að TÆKIFÆRI, sem er sniðið að fólki sem nú er að takast á við breytta stöðu á vinnumarkaði og aðstoðar það við að finna úrræði og viðspyrnu í leit að atvinnu, námsleiðum eða nýsköpunartækifærum.
TÆKIFÆRI er fyrir:
• Einstaklinga sem misst hafa vinnu og maka þeirra
• Einstaklinga sem búa við skertan vinnutíma og þá sem hafa lækkað verulega í tekjum vegna
aðstæðna á vinnumarkaði. Markmið TÆKIFÆRIS er að byggja upp einstaklinga þannig að þeir
geti tekist á við uppbyggingu Íslands að nýju.
TÆKIFÆRI verður hluti af Hugmyndahúsinu sem verður miðstöð fyrir þá sem vilja leita að tækifærum,
efla sig, skapa, móta og hrinda tækifærum sínum í framkvæmd. Hugmyndahúsið mun auk TÆKIFÆRIS
hýsa ýmsa aðra starfsemi sem stendur öllum til boða og áhersla verður lögð á lifandi og aðlaðandi
umhverfi.
IÐAN fræðslusetur, www.idan.is, varð til við samruna fjögurra fræðslumiðstöðva í iðnaði og
ferðaþjónustu vorið 2006. Um áramótin 2006-2007 bættist síðan Fræðslumiðstöð bílgreina í hópinn.
Hlutverk IÐUNNAR er fyrst og fremst að bæta hæfni fyrirtækja og starfsmanna í bíl-, bygginga- og
málmiðngreinum, prentiðnaði og matvæla- og veitingagreinum.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, http://www.idan.is. Á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins er mögulegt að nálgast upplýsingaveitu um samstarf í menntunarúrræðum þar sem nýjustu námskeið og úrræði eru kynnt.
Hlutverkasetur, www.hlutverkasetur.is, hvetur þá, sem misst hafa vinnuna eða önnur mikilvæg
hlutverk að koma í Hlutverkasetur og taka þátt í að byggja upp jákvætt umhverfi, koma reglu á lífið,
og kynnast fólki í svipuðum aðstæðum. Hlutverkasetur býður upp á umgjörð, hvatningu og stuðning
fyrir þá sem vilja efla starfsgetu á markvissan hátt eða auka lífsgæðin. Stefnt er að því að efla
sjálfsmynd gegnum verkefni, fræðslu og umræður. Starfsfólk Hlutverkaseturs veitir hvatningu og
stuðning, í gegnum samveru, samskipti og sameiginleg verkefni til að aðlagast breyttum aðstæðum.
Markmið er að komast aftur út á almennan vinnumarkað, fara í nám eða auka lífsgæði. Á föstudögum
milli 13 og 14 eru kynningar á Hlutverkasetri. Allir velkomnir sem hafa áhuga á að kynna sér
starfsemina.
Starfsmennt, www.smennt.is, býður upp á fræðslu og margs konar námskeið fyrir opinbera
starfsmenn, t.d. tölvunámskeið o.fl. Námskeiðin eru án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga
Fræðsluseturs Starfsmenntar.
Öku- og vinnuvélaskólinn, www.ovs.is, er í samstarfi við marga aðila. Opinber eftirlitsaðili með ökunámi er Umferðarstofa en málaflokkurinn í heild heyrir undir samgönguráðuneyti. Vinnueftirlitið er opinber eftirlitsaðili með vinnuvélanámi en málaflokkurinn heyrir undir félagsmálaráðuneyti. Boðið er upp á ýmis námskeið eins og: Vinnuvélanámskeið, meira próf, almennt ökupróf og námskeið í vistakstri.
Framvegis, www.framvegis.is, miðstöð um símenntun, er sjálfstætt fræðslufyrirtæki í eigu
Verzlunarskóla Íslands, BSRB, Sjúkraliðafélag Íslands, SFR stéttarfélags í almannaþjónustu og
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Framvegis vinnur í nánu samstarfi við ofangreinda aðila sem og
Fræðslusetrið Starfsmennt, Alþjóðahúsið og símenntunarstöðvar landsins. Framvegis hefur fram að
þessu lagt höfuðáherslu á símenntun stétta í heilbrigðis- og félagsþjónustu, en þjónusta við aðrar
starfsstéttir eins og starfsfólk í skrifstofu-, verslunar- og þjónustustörfum er vaxandi þáttur í starfsemi
Framvegis.
Nýttu kraftinn, www.nyttukraftinn.is, er þriggja mánaða ferli þar sem rauði þráðurinn er að ganga til hvers dags sem vinnudagur væri og gera sjálfan sig þannig samkeppnishæfari í atvinnuleitinni. Boðið er upp á áhugasviðspróf til að víkka hugann og skapa ný tækifæri sem og tengingu við vinnumarkaðinn en hver og einn fær Mentor úr atvinnulífinu sem hann hittir á tveggja vikna fresti yfir tímabilið.
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn (NTV), www.ntv.is, veitir öllum skjólstæðingum Vinnumálastofnunar 25% afslátt af völdum námskeiðum. Þar til viðbótar veitir Vinnumálastofnun 50% námsstyrk. Ef einstaklingur hefur áunnið sér rétt til námsstyrks hjá sínu verkalýðsfélagi, bætist hann við ofangreind afsláttarkjör. NTV veitir afslátt af starfsnámi, námi í margmiðlun og tækninámi fyrir einstaklinga í atvinnuleit sem skráðir eru hjá Vinnumálastofnun.
Hringsjá, náms- og starfsendurhæfing, www.hringsja.is, er fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eða í nám eftir hlé vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla.
Menntatorg, www.menntatorg.is, er ætlað þeim sem eru 20 ára og eldri, hafa ekki lokið framhaldsskóla, eru atvinnulaus og eru að leita sér að stuttu námi eða námskeiði.
Frumkvöðla- og sprotasetur
Hugmyndahús háskólanna, www.hugmyndahus.com, er samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Hugmyndahúsið stendur fyrir námskeiðum um stjórnun og rekstur fyrirtækja, opnum fyrirlestrum um allt hvaðeina og sinnir ráðgjöf fyrir þá sem ganga með viðskiptahugmynd af einhverju tagi í maganum. Aðstaða í boði gegn vægu gjaldi og áhersla er lögð á hlýlegt og skapandi umhverfi, kaffihús á staðnum. Sprotahús V6, www.v6.is, og frumkvöðlasetur Mosfellsbæjar eru staðsett undir sama þaki, á Völuteig 6 í Mosfellsbæ. Innan veggja V6 Sprotahúss er að finna allt sem þarf til að gera hugmynd að veruleika og vel reknu fyrirtæki. Að auki býðst hönnuðum, sprotafyrirtækjum og öðru athafnafólki leiga á borði og aðstöðu og möguleiki til að stunda rekstur með ráðgjöf við höndina og tækifæri til tengslamyndunar í dýnamisku umhverfi.
Frumkvöðlasetur Mosfellsbæjar beinir sjónum að úrræðum fyrir atvinnulausa og stuðningi við
viðskiptahugmyndir þeirra í samræmi við markmið frumkvöðlasetra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands, www.impra.is, veitir ráðgjöf varðandi stofnun fyrirtækja og er með fræðslu- og stuðningsverkefni fyrir frumkvöðla. Impra veitir öllum frumkvöðlum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi leiðsögn, sama í hvaða atvinnugrein þau starfa, hvort heldur á sviði iðnaðar, sjávarútvegs, þjónustu eða annarra greina íslensks atvinnulífs.
Deiglan – atvinnu- og þróunarsetur, www.hafnarfjordur.is, við Lækinn í Hafnarfirði var sett á stofn til að bregðast við þrengingum á vinnumarkaði og vaxandi atvinnuleysi og tilgangurinn er að skapa vettvang og aðstöðu fyrir samveru, hugmyndavinnu og þróun nýrra tækifæra. Í boði eru ýmis námskeið og ráðgjöf og aðstaðan er opin öllum, hvort sem þeir eru atvinnulausir eða ekki.
Tómstundir eldri borgara
Korpúlfar, samtök eldri borgara í Grafarvogi skipuleggja fjölbreytt félagsstarf fyrir eldri borgara í Grafarvogi og hafa samtökin aðstöðu á Korpúlfsstöðum. Sími 517 3040. Tengiliður er Arndís Ósk Hauksdóttir, Miðgarði Langarima 21, sími : 411 1400.
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, http://www.feb.is er langstærsta félagið innan Landssambands eldri borgara með yfir 8 þúsund félagsmenn. Hlutverk þess er að gæta hagsmuna eldri borgara í hvívetna. Rétt til að verða félagsmenn eiga þeir sem hafa náð 60 ára aldri og einnig makar þeirra þótt þeir séu yngri. Blómleg starfsemi er rekin innan félagsins á mörgum sviðum.
Auk þessa er fjölbreytt dagskrá í félagsmiðstöðvum borgarinnar. Hægt er að finna dagskrá á www.reykjavik.is, hverfið mitt.
Börn, unglingar og fjölskyldur
Rauði Kross Íslands www.rki.is
· Hjálparsími Rauða Kross Íslands 1717,
• Fyrir þá sem þurfa aðstoð vegna depurðar, kvíða, þunglyndis, eða sjálfsvígshugsana
• Gjaldfrjáls sími
• Opinn allan sólarhringinn
· Rauðakrosshúsið, www.raudakrosshusid.is, er miðstöð fyrir alla landsmenn þar sem þeim gefst tækifæri til að sækja ýmiss konar námskeið og fá fræðslu og sálrænan stuðning. Með starfseminni vill Rauði krossinn veita einstaklingum og fjölskyldum stuðning til að takast á við breyttar aðstæður eða nýta krafta sína öðrum til gagns. Félagsstarfið og fræðslan er opið öllum. Dagskráin er afar fjölbreytt og samanstendur af ýmsum föstum liðum eins og leshring, gönguhóp, sálrænum stuðning og tölvuaðstoð – og öðrum tilfallandi viðburðum. Ný dagskrá er gefin út vikulega og má finna hana á vefsíðu hússins. Fjölbreyttir fyrirlestrar, námskeið, kynningar og afþreying eru í boði alla daga. Aðgangur er ókeypis. Hér má líka finna upplýsingar um frístundir og námskeið fyrir almenning sem kosta lítið eða ekki neitt. Heimsóknarvinir, sjálfboðaliðar heimsækja heimili, stofnanir, dvalar- og hjúkrunarheimili.
· Fataúthlutun. Úthlutun fer fram að Laugavegi 116 á miðvikudögum kl 10–14.
· Vin er athvarf fyrir fólk með geðraskanir. Opið er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9-16, föstudaga kl. 10-16. Yfir vetrartímann er opið á miðvikudögum kl. 13-20 og sunnudögum frá kl. 14-17.
• Læknisþjónusta
• Mæðravernd
• Ungbarnavernd
• Skólaheilsugæsla
• Heimahjúkrun
Bráðaþjónusta Geðsviðs Landspítala, www.lsh.is
• Fólk getur leitað með áríðandi mál af geðrænum toga án þess að eiga pantaðan tíma.
• Móttaka í geðdeildarbyggingu Landspítala við Hringbraut.
• Opnunartími er frá kl. 8 til 23 á virkum dögum og frá kl. 13 til 21 um helgar og á frídögum.
Utan þess tíma er hægt að leita á almennu bráðamóttöku spítalans.
• Sími 543 4050.
• Hjúkrunarfræðingar veita símaráðgjöf varðandi aðgang að þjónustunni og annað er lítur að
bráðameðferð.
Fjölskyldumorgnar á bókasöfnunum í Tryggvagötu og Gerðubergi. Alþjóðlegir fjölskyldumorgnar eru haldnir vikulega. Við bjóðum velkomna foreldra frá öllum löndum sem eru með börn á aldrinum 0-6 ára og vilja hitta aðra með lítil börn. Boðið er upp á samverur þar sem reglulega fer fram stutt íslenskukennsla fyrir foreldrana og fjölbreyttar kynningar. Leikföng fyrir börnin eru á staðnum og léttar veitingar eru í boði. Þátttaka er ókeypis. Allir eru velkomnir, innfæddir og innflytjendur, hvort sem þeir tala enga eða einhverja íslensku.
Fjölskyldumiðstöðin, www.barnivanda.is
• Markmiðið er að aðstoða og styðja foreldra með lögheimili í Reykjavík sem eiga börn í vanda,
s.s. vegna vímuefnaneyslu, samskiptaerfiðleika og hegðunar.
• Unglingaráðgjöf , ráðgjöf fyrir foreldra, hópastarf.
• Sími 511 1599. Mánudaga og þriðjudaga kl. 09 – 18. Miðvikudaga kl. 09 – 20. Fimmtudaga kl.09 – 17. Föstudaga kl. 09 – 12
Þjóðkirkjan
· Fjölskylduþjónusta kirkjunnar, www.kirkjan.is/fjolskylduthjonusta.
Viðtalsþjónusta við fjölskyldur í erfiðleikum. Sími 528 4300.
· Kirkjusóknir Þjóðkirkjan hefur með höndum margskonar félagslega þjónustu og kærleiksþjónustu safnaða. Prestar og djáknar í sóknum og á stofnunum veita fólki stuðning, ráðgjöf, sálgæslu auk leiðsagnar í andlegum efnum. Neyðaraðstoð innanlands er ýmist veitt í kirkjum eða um farveg Hjálparstarfs kirkjunnar.
· Innanlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar, S. 528 4400.
Félagsleg ráðgjöf: Félagsráðgjafar veita fólki ráðgjöf sem sækir um félagslega eða fjárhagslega aðstoð. Skrifstofan er opin og neyðarhjálp er veitt alla virka daga frá kl. 8-16:00 að Háaleitisbraut 66.
Mataraðstoð. fer fram miðvikudaga kl. 12-17 að Háaleitisbraut 66.
Aðstoð við að leysa út lyf. Hjálparstarfið greiðir nauðsynleg lyf þegar þörf er á og greiðir þau beint til lyfjaverslana.
Fataúthlutun. Fataúthlutun fer fram þriðjudaga kl. 10-12. Foreldrar geta fengið styrk vegna fatakaupa við skólabyrjun barna sinna, einnig við kaup á skólatöskum o.fl.
Húsgagna- og húsbúnaðarkaup. Afsláttarkjör eru veitt í Góða hirðinum.
Styrkir. Hjálparstarfið á í samstarfi við fjölmarga aðila sem miðla styrkjum innanlands í gegnum Hjálparstarfið. Velferðasjóður íslenskra barna er ætlaður börnum m.a. til sumar- og vetrartómstunda. Á haustin eru veittir styrkir til foreldra vegna útgjalda í skólabyrjun. Framtíðarsjóður Hjálparstarfsins. Sjóðurinn styrkir unglinga í efnaminni fjölskyldum til þess að ljúka námi til starfsréttinda eða til þess að komast í lánshæft nám.
Fjölskylduhjálp Íslands, www.fjolskylduhjalpin.net
Úthlutun matar- og nauðsynjavara, aðstoð vegna greiðslu lyfja o.fl. er miðvikudaga kl. 14-16 að Eskihlíð 2-4.
Fatasala miðvikudaga kl. 14-16. Nýr og notaður fatnaður á mjög lágu verði.
Mæðrastyrksnefnd, www.maedur.is
• Afgreiðsla á mat, fatnaði o.fl. er á miðvikudögum frá kl. 14-17 í Hátúni 12 b.
• Aðra virka daga er skrifstofan opin frá kl. 10-15.
Fataúthlutun fer fram miðvikudaga kl. 14-17.
• Mæðrastyrksnefnd úthlutar sumarstyrkjum til barna í Reykjavík vegna sumarbúða, námskeið o.fl.
Um mig, www.ummig.is, er upplýsingavefur um heilsu og líðan barna, unglinga og foreldra.
Umhuga, www.umhuga.is, er upplýsingavefur um geðheilsu barna og ungmenna
Heimili og skóli, www.heimiliogskoli.is, eru félagasamtök fyrir foreldra.
• Ráðgjöf til foreldra og foreldrasamtaka.
• Gefa út tímarit og ýmis konar efni um foreldrastarf.
Saman-hópurinn, www.samanhopurinn.is. Samstarfshópur fólks sem vinnur að forvörnum. Starf hópsins miðar að því að styrkja og styðja foreldra í sínu uppeldishlutverki.
Foreldrahús, www.vimulaus.is, er með opna fræðslufundi frá 16:30-18:00 alla miðvikudaga að Borgartúni 6. Þar er hægt að fá fræðslu og kynningu á þeim úrræðum sem eru í boði fyrir börn í vanda.
Hitt húsið, www.hitthusid.is, býður upp á aðstoð og aðstöðu fyrir ungmenni á aldrinum 16-25 ára.
Þar verða í boði í vetur ýmis námskeið fyrir ungt fólk.
Kvennaathvarfið, www.kvennaathvarf.is
• Athvarf fyrir konur og börn þeirra þegar dvöl í heimahúsum er þeim óbærileg vegna andlegs
eða líkamlegs ofbeldis eiginmanns, sambýlismanns eða annarra heimilismanna.
• Símaráðgjöf allan sólarhringinn í síma 561 1205.
• Ókeypis viðtöl, þar sem konur geta komið og fengið stuðning og upplýsingar án þess að til
dvalar komi. Nauðsynlegt er að hringja áður í síma 561 1205 og panta tíma.
• Sjálfshjálparhópar þar sem nokkrar konur hittast reglulega undir handleiðslu starfskonu
Kvennaathvarfsins. Nauðsynlegt er að koma í viðtal áður.
Stígamót, www.stigamot.is, er ráðgjafar- og upplýsingamiðstöð fyrir konur og börn sem beitt hafa
verið kynferðisofbeldi.
Blátt Áfram, www.blattafram.is, er félag sem hefur þann tilgang að ræða kynferðislegt ofbeldi blátt
áfram og í dagsljósinu með það að markmið að fræða samfélagið um málaflokkinn.
Umboðsmaður barna, www.barn.is. Grænt númer 800 5999.
Fjölsmiðjan, http://www.fjolsmidjan.is , er vinnusetur fyrir ungt fólk, sem stendur á krossgötum. Fjölþætt verkþjálfun og fræðslustarfsemi fyrir ungt fólk 16-24 ára sem hætt hefur í námi eða ekki fótað sig á atvinnumarkaði.
Húsnæðismál
Íbúðalánasjóður, www.ils.is
• Grænt númer: 800 6969
• Þjónustuver: 569 6900
• Spurt og svarað á vefsíðu
• Netspjall á vefsíðu
• Úrræði íbúðalánasjóðs fyrir heimili í greiðsluvanda
• Vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði
• Greiðsluerfiðleikar
Leigumiðlun, www.leiga.is
• Gagnvirkur vefur fyrir þá sem eru að leita að leiguhúsnæði eða vilja leigja út húsnæði
• Opnunartími er frá 10:00 til 16:00 virka daga
• Sími 534 4488
Húseigendafélagið, www.huseigendafelagid.is
• Lögfræðileg ráðgjöf fyrir félagsmenn, nauðsynlegt er að panta viðtalstíma fyrirfram.
• Skrifstofan, Síðumúla 29, er opin mánudag til fimmtudaga frá kl. 9 til 15 en svarað er í síma
frá kl. 10 til 14. Á föstudögum er opið frá kl. 9 til 13 og þá er síminn opinn þá frá 10 til 12.
• Sími 588 9567.
Atvinnumál
Vinnumálastofnun, www.vinnumalastofnun.is
• Vinnumálastofnun höfuðborgarsvæðinu, Engjateigi 11, 105 Reykjavík
• Opið er alla virka daga frá kl. 09:00 - 15:00.
• Sími 515-4850, fax 588-2587
• Atvinnuleysisskráning
• Upplýsingar um atvinnuleysistryggingar
• Fræðsla og ráðgjöf
Alþýðusamband Íslands, www.asi.is
• Sætúni 1
• Sími: 53 55 600, Fax 53 55 601
• Upplýsingar til launafólks um efnahagsþrengingar
• Ýmsar upplýsingar um atvinnumissi
Stéttarfélög veita félagsmönnum sínum upplýsingar um réttindi þeirra á vinnumarkaði.
Tryggingastofnun ríkisins, www.tr.is
• Grænt númer: 8006044
• Vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði
• Lífeyrisþegar í útlöndum
Erlendir íbúar
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða er þekkingarstöð í fjölmenningu og margbreytileika og hefur á
að skipa starfsfólki, sem er sérhæft í málefnum útlendinga og minnihlutahópa. www.velferdarsvid.is
Sími: 411 1600.
Alþjóðasetur, www.ahus.is
• Lögfræðiráðgjöf
• Upplýsingar og ráðgjöf
• Túlkun og þýðingar
• Fræðsla
• Félagsstarf
• Íslenskukennsla
• Opnunartími alla daga frá kl 08:00 – 16:00.
Fjölmenningarsetur rekur m.a. alhliða upplýsingavef um málefni útlendinga á Íslandi, http://www.mcc.is Þar er t.d. orðabók eða orðasafn á ýmsum tungumálum þar sem er að finna erfið orð eins og afsal. Listinn kemur sér vel fyrir þá sem tala íslensku en vantar þýðingu flóknari orða.
Jafnréttishús, www.jafn.is
• Íslensku og lífsleikninámskeið fyrir atvinnulausa innflytjendur.
• Áhugasviðspróf og leiðbeint út frá niðurstöðum um hvaða möguleikar standa til boða.
• Vettvangsferðir skoðaðar út frá niðurstöðum
•. Opnunartími frá kl 08:30 – 15:00
• Strandgötu 25, Hafnarfirði
Fjárhags- og greiðsluerfiðleikar
Samræmt þjónustu- og upplýsinganet Félags- og tryggingamálaráðuneytis
• Upplýsingamiðstöð
• Sími 545 8950 eða í grænu símanúmeri 800 1190. Símtöl í græna númerið eru endurgjaldslaus.
• Milli 8 og 22 alla virka daga.
• Hægt er að beina fyrirspurnum til miðstöðvarinnar í tölvupósti á netfangið: midstod@mfa.is.
Umboðsmaður skuldara www.ums.is
• Símaráðgjöf er alla virka daga.
• Íbúar landsbyggðarinnar geta sent umsóknir um ráðgjöf í pósti og fengið tillögur til úrbóta sendar til baka.
• Netspjall á vefsíðu.
• Spurt og svarað á vefsíðu
• Sími : 512 6600
• Kringlunni 1
Á vefsíðum bankanna hefur verið komið upp sérstöku svæði með upplýsingum varðandi þær
aðstæður sem nú ríkja á fjármálamarkaði eftir yfirtöku Fjármálaeftirlits á bönkunum þremur, Glitni,
Kaupþingi og Landsbanka.
Þjónustufulltrúar bankanna veita einstaklingum upplýsingar og ráðgjöf varðandi fjármál einstaklinga.
Tryggingasjóður innistæðueigenda og fjárfesta, www.tryggingasjodur.is
• Spurt og svarað á vefnum
• Tryggingasjóður inneigna sími 540 1200
• Ný lög um heimildir til fjárveitinga úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl.
Neytendasamtökin, www.ns.is, bjóða upp á fjármálanámskeið. Neytendasamtökin eru frjáls
félagasamtök. Félagsmenn og fjölskyldur þeirra fá m.a. leiðbeiningar um rétt sinn og aðstoð til að ná
fram rétti sínum. Félagsmenn geta fengið rafrænt heimilisbókhald og aðgang að alls kyns gæða- og
markaðskönnunum á læstu svæði á vefsíðunni. Í samstarfi við Reykjavíkurborg og fleiri sveitarfélög eru haldin námskeið í fjármálum heimilanna, þar sem farið er yfir kosti þess að halda heimilisbókhald, sparnaðarráð og úrræði fólks í greiðsluerfiðleikum. Námskeiðin og heimilisbókhalds-forrit er
þátttakendum að kostnaðarlausu.Sérstök námskeið fyrir ungmenni eru haldin í samstarfi við Hitt
húsið undir fyrirsögninni Klár í kreppu. Þar er farið yfir námsefnið Fjárinn sem er fjármála- og
neytendafræðsla fyrir ungt fólk. Námskeið og námsefni er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Ábyrgðarsjóður launa, www.abyrgdarsjodur.is
• Vinnumálastofnun, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu
• Sími: 515 4800
• Fax: 511 2520
• Símatími kl. 10:30 - 11:00.
www.island.is er um vefur þar sem hægt er að leita upplýsinga um úrræði og tækifæri fyrir fólk í ólíkum aðstæðum/erfiðleikum.
Annað
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, www.strv.is/nams. Félagsmenn í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar geta sótt um styrki vegna starfs- og endurmenntunar og vegna fyrirbyggjandi heilsueflingar og sjúkradagpeninga í Styrktarsjóð BSRB. Þá bjóða SFR stéttarfélag í almannaþjónustu og St.Rv. (Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar) í sameiningu félagsmönnum sínum upp á námskeið þeim að kostnaðarlausu í námskeiðaröðinni Gott að vita – þar má m.a. finna; fjármálanámskeið, skapandi skrif, ljósmyndanámskeið, sjálfstyrkingarnámskeið o.fl.
www. island.is: Leiðarvísir að opinberri þjónustu og liður í að auðvelda almenningi aðgang að henni.
Kvíðameðferðarstöðin, www.kms.is. Um er að ræða meðferðarstöð þar sem boðið er upp á hugræna
atferlismeðferð við kvíða og skyldum vandkvæðum fyrir fullorðna. Leitast er við að bjóða upp á
einstaklingssniðna og árangursmiðaða meðferð sem fer ýmist fram á formi einstaklings- eða
hópmeðferðar eftir því sem við á.
Fjölskylduþjónusta kirkjunnar, www.kirkjan.is/annall/fjolskylduthjonusta
• Messur, kyrrðar- og bænastundir.
• Samtalstímar hjá presti.
• Námskeið og fyrirlestrar um fjölskyldulíf, fjármál, grunngildi og það að takast á við tilveruna
og áföll í víðum skilningi.
Landlæknisembættið, www.landlaeknir.is
• Eftirlit með heilbrigðisstofnunum
• Upplýsingasöfnun
• Ráðgjöf
Lýðheilsustöð, www.lydheilsustod.is
• Byggja upp þekkingarsetur allra landsmanna, fagfólks jafnt sem almennings, á sviði lýðheilsu.
• Efla og samræma lýðheilsustarf í landinu.
• Efla kennslu og rannsóknir á sviði lýðheilsu.
• Vinna að lýðheilsuverkefnum á eigin vegum og í samvinnu við aðra.
Talsmaður neytenda, www.talsmadur.is, upplýsir m.a. fólk um réttindi sín, og tekur við kvörtunum vegna neytendamála.
Hagsmunasamtök heimilanna, www.heimilin.is. Samtökin hafa það m.a. að markmiði að knýja fram leiðréttingu verðtryggðra og erlendra húsnæðislána og að jafna ábyrgð milli lántakenda og
lánveitenda.
Geðhjálp, www.gedhjalp.is, er hagsmunasamtök þeirra sem eiga eða hafa átt við geðraskanir að etja, aðstandenda þeirra og allra þeirra er láta sig geðheilbrigðismál varða.
• Túngötu 7 í Reykjavík
• Sími 570 1700
• Ráðgjöf
• Upplýsingamiðlun
• Félagsmiðstöð er opin alla virka daga frá 9-16
• Mötuneyti
• Sjálfshjálparhópar
Hugarafl, www.hugarafl.is, er hópur notenda í bata sem hafa átt við geðræna erfiðleika að stríða sem vinnur skv. hugmyndafræði valdeflingar að verkefnum sem geta bætt geðheilbrigðisþjónustu.
Hópurinn starfar við miðstöðina Geðheilsa-eftirfylgd/iðjuþjálfun í Álfabakka 16.
SAMHJÁLP
· Kaffistofa Samhjálpar að Borgartúni 1 er opin fyrir utangarðsfólk og aðra aðstöðulausa kl. 10-16 virka daga og 11-16 um helgar. Boðið er upp á kaffisopa að vild og meðlæti. Klukkan þrjú er heit súpa eða matur borinn fram endurgjaldslaust.
· Gistiskýlið Þingholtsstræti 25. Næturgisting fyrir heimilislausa karla í Reykjavík. Skýlið er opið allan sólarhringinn og er opnunartímanum skipt niður í nætur- og dagvistun. Morgunverður er borinn fram daglega.
Heimili fyrir heimilislausa. Heimilið er fyrir heimilislausa Reykvíkinga og hýsir 7 til 8 einstaklinga. Heimilið er fyrir karlmenn sem hafa verið greindir með fíknisjúkdóma auk geðrænna kvilla. Stuðningsbýlið Miklabraut 18. Þar búa einstaklingar sem hafa átt erfitt með að fóta sig eftir hefðbundnum meðferðarleiðum en gert er ráð fyrir að hægt sé að dvelja í úrræðinu í allt að tvö ár. Í stuðningsbýlinu hafa allir íbúar sér herbergi en setustofa, eldhús og þvottaaðstaða er sameiginleg. Boðið er upp á morgunmat og eina heita máltíð á dag.
Hjálpræðisherinn
· Hertex nytjamarkaður í Reykjavík Eyjarslóð 7, opinn 13-18 virka daga, 10-14 laugardaga.
· Fatamarkaður Garðastræti 6, opinn 13-18 virka daga og 10-14 laugardaga.
· Leiga á herbergjum. Leigan er frá eins og upp í fimm manna herbergi. Eins manns herbergi í mánuð kr. 35.000 og tveggja manna kr. 50.000
· Dagsetur fyrir utangarðsfólk– Eyjarslóð 7. opið daglega frá 12 – 17. Fólk fær tækifæri til að fá sér að borða, fara í sturtu, hvílast, fá fótsnyrtingu, þvo fötin sín, ræða málin sín, og fleira og fleira.
Kærleiksboðberarnir
· Súpueldhús Kærleiksboðberarnir sem eru 6 nunnur í reglu Móður Teresu. Þær reka súpueldhús á Sólvallagötu.
· Handavinna og matur. Í Hátúni 10 er samverustund alla mánudaga kl. 16:00. Handavinna og matur þátttakendum að kostnaðarlausu. Á jóladag er boðið upp á ókeypis mat í Hátúni 10.
Konukot Eskihlíð 4 er næturathvarf fyrir heimilislausar konur. Athvarfið er opið frá kl. 17-12 daginn eftir og ætlast er til þess að konur komi í hús fyrir kl. 01 á nóttunni. Boðið er upp á léttan kvöldverð og morgunverð. Konur geta þvegið af sér og farið í bað, auk þess sem þær geta fengið fatnað, sem fataflokkunarstöð Rauða krossins útvegar, ef á þarf að halda.
Heilsuhýsið er fyrir jaðarhópa í samfélagsinu, t.d. útigangsfólk, heimilislausa og fíkla, þar sem þeim er boðin almenn heilsuvernd, án fordóma eða kvaða, í þeirra nærumhverfi.
Félag einstæðra foreldra
· Félagsráðgjafi veitir ráðgjöf og hagnýta aðstoð alla virka daga
· Lögfræðingur veitir lagalegar ráðleggingar
· Námskeið og stuðningshópar fyrir verðandi mæður
· Námsstyrkir
Ný dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð, www.sorg.is
• Upplýsingamiðlun
• Fræðsla og stuðningur
AA samtökin (AA, Al-anon, CoDA, OA, o.fl.), www.aa.is, www.oa.is, www.coda.is, www. al-anon.is
Félagasamtök sem hafa það að leiðarljósi að leiða fólk saman sem á sameiginlegan reynsluheim
vegna ávana- og fíknihegðunar og vill hætta þeirri hegðun.
SÁÁ, www.saa.is. Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann sem vinna að áfengis- og
vímuefnavörnum um allt land og veita öllum landsmönnum þjónustu.
• Efstaleiti 7, 103 Reykjavík
• Sími: 530 7600
• Ráðgjöf og stuðningur
• Fræðsla
• Meðferð
• Göngudeild
• Eftirmeðferð
Orator, félag lögfræðinema við HÍ, www.orator.is
• Endurgjaldslaus lögfræðiaðstoð – lögfræðilegar fyrirspurnir í síma.
• Fimmtudagskvöldum frá klukkan 19:30 til 22:00 frá september til apríl.
• Sími: 551 1012.
Lögfræðiþjónusta Lögréttu, www.logretta.is. Laganemar við Háskólann í Reykjavík veita ókeypis lögfræðiþjónustu fyrir innflytjendur alla miðvikudaga frá 17-21.
Lögfræðiráðgjöf ÖBÍ, www.obi.is. Markmið lögfræðiráðgjafar ÖBÍ er að auðvelda öryrkjum, fötluðum og aðstandendum að leitaréttar síns. Um er að ræða lögfræðiráðgjöf þar sem lögmaður tekur ekki að sér einstök mál nema með samþykki ÖBÍ og er þá haft í huga að málið hafi fordæmisgildi fyrir aðra öryrkja og fatlaða. Panta þarf viðtal hjá lögfræðingi á skrifstofu ÖBÍ. Viðtalstímar eru aðra hverja viku og oftar ef þess gerist þörf. Þjónusta ráðgjafa- og lögfræðiþjónustu ÖBÍ er fólki að kostnaðarlausu.
Lögmannavaktin, www.lmfi.is, er ókeypis lögfræðiráðgjöf fyrir almenning. Þjónustan er veitt alla þriðjudagseftirmiðdaga og íbúar höfuðborgarsvæðisins koma á skrifstofu félagsins en íbúar landsbyggðar geta hringt.
Kvennaráðgjöfin, www.kvennaradgjofin.is, er ókeypis lögfræði- og félagsráðgjöf fyrir konur.
Megintilgangur starfseminnar er að veita konum stuðning og ráðgjöf, en Kvennaráðgjöfin er opin
öllum, konum og körlum og má hvort sem er koma eða hringja. Þjónustan er endurgjaldslaus og þurfa
þeir sem þangað sækja ekki að gefa upp nafn eða aðrar persónuupplýsingar.
Matarkarfan, www.matarkarfan.is. Á vefsíðunni matarkarfan.is eru flest öll gildandi tilboð á
matvörumarkaðnum samankomin á einum stað. Vefsíðan eykur talsvert gagnsæi á matvörumarkaðnum og er til mikilla hagsbóta fyrir neytendur. Matarkarfan.is er hlutlaus vefsíða sem auðveldar neytendum að gera hagstæð kaup, með því að gera tilboðin einstaklega aðgengileg á einum stað.
Kúpon, www.kupon.is.Kúpon er fyrsti og eini vefurinn sinnar tegundar hér á landi. Tilgangurinn er að tryggja notendum aukinn afslátt af daglegum neysluvörum.
Menning, listir og afþreying
Listasafn Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is, er starfrækt á þremur stöðum í borginni; í Hafnarhúsi við Tryggvagötu, Ásmundarsafni við Sigtún og á Kjarvalsstöðum. Aðgangur er ókeypis í öll safnhúsin en þau eru jafnframt opin alla daga vikunnar og Hafnarhúsið er með kvöldopnun á fimmtudagskvöldum til kl. 22. Í Listasafni Reykjavíkur fer fram viðamikil dagskrá sem tengist
sýningum og er ætluð fólki á öllum aldri, jafnt leikum sem lærðum, og er hún alltaf gjaldfrjáls og öllum opin.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur, www.ljosmyndasafnreykjavikur.is. Gjaldfrjáls aðgangur er á sýningar Ljósmyndasafns Reykjavíkur, sem eru opnar fram á kvöld virka daga og einnig um helgar. Á ljósmyndasafninu er gott safn ljósmyndabóka og -tímarita, auk þess er ókeypis aðgangur að þráðlausu Interneti.
Þjóðminjasafnið, www.natmus.is. Aðgangur er ókeypis alla miðvikudaga.
Borgarleikhúsið, www.borgarleikhus.is, býður leikhúsmiða með 700 kr. afslátt fyrir atvinnuleitendur. Ekki þarf að sýna gögn til að staðfesta atvinnuleit.
Sinfóníuhljómsveit Íslands, www.sinfonia.is, býður atvinnuleitendum á tónleika sveitarinnar. Hljómsveitin vill leggja sitt af mörkum og gera sem flestum kleift að koma og hlusta á tónleika hennar.
Þjóðleikhúsið, www.leikhusid.is, hefur um árabil veitt atvinnulausum afslátt á sýningar en hefur nú ákveðið að bjóða upp á sérstök fríkort fyrir atvinnulausa. Samstöðukort Þjóðleikhússins er afhent í
miðasölu leikhússins, gegn vottorði um skráningu á atvinnuleysisskrá (eða launaseðli frá vinnumálastofnun) og gildir sem fríkort út leikárið.