Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Útivistarrjóðrin í Grafarholti vígð

29.10.2009

Upplestur á frétt

Þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi ekki verið samvinnuþýðir í þetta sinn létu íbúar Grafarholts og Úlfarsárdals sig
ekki  vanta við vígslu fyrstu rjóðranna.  Komið var saman í rjóðrinu austan Sæmundarskóla við bakka Reynisvatns þar
sem rjóðrin  voru formlega opnuð íbúum.  Dagskráin var óformleg og hófst með því að skólabörn úr Sæmundarskóla tóku
lagið.  Guðmundur Hrafn Arngrímsson verkefnastóri sagði frá vinnunni og aðkomu ungmenna frá sjálfboðaliðasamtökunum
SEEDs , unglingum úr báðum grunnskólum hverfisins og foreldrum.
Gísli Marteinn Baldursson vatt sér uppá borð og talaði um mikilvægi frumkvæðis frá íbúum og kraftinn sem leystur er
úr læðingi þegar íbúar og borgarstofnanir vinna saman að verkefnum nærumhverfinu. Að lokum var viðstöddum boðið í
göngu með Höskuldi Jónssyni hinum kunna útivistar manni um svæðið.

Gísli Marteinn uppá borði  Íbúar Grafarholts og Úlfarsárdals

Verkefnið Útivist og hreyfing er styrk af Forvarnar og framfarasjóði Reykjavíkurborgar. Verkefnið hefur það að
markmiði að skipuleggja fjögur rjóður sem verða áningarstaðir á fallegri gönguleið um nágrenni Reynisvatns og eru
viðleitni til þess að mæta þörfum íbúa fyrir útivist og hreyfingu. Nú eru tvö rjóður tilbúin til notkunar  en vonast
er til að verkefnið klárist næsta sumar.