Internet útvarpsrás slær í gegn!
11.01.2010
Upplestur á frétt 
Þeir félagar hafa nú sent út nokkrum sinnum en í gær var þeirra fyrsti alvöru þáttur þar sem þeir voru í studio í Ingunnarskóla. Voru þeir í beinni og ómuðu raddir þeirra um allan skólann.
,,Já það komu góðir gestir til okkar í gær, Haraldur Þorvarðarson handbolta kempa í Fram og
Guðlaug Erla Gunnarsdóttir skólastjóri Ingunnarskóla” segir Arnar Freyr Dagbjartsson einn af þremur stjórnendum Radio113.
“Þetta byrjaði nú allt sem grín og bjuggumst við ekki við svona miklum vinsældum. En þetta hefur farið fram úr okkar björtustu vonum, segir Kristján Ingi Geirsson tæknimaður, en almenningur um allt land hafa litið við og hlustað. “Við viljum benda á að það er aðeins hægt að hlusta á okkur á netinu og hægt er að nálgast nánari upplýsinga inn á Facebook síðunni okkar Radio113, segir Jakob Steinn Stefánsson þátta stjórnandi. Það er www.qntfitness.is og Friis & Company sem eru aðal sponsar og halda þessari útvarpsstöð gangandi.
-Radio 113

Arnar, Jakob og Kristján útvarpsstjórar.