Skautadagurinn mikli á Reynisvatni
03.03.2010
Upplestur á frétt 
Fjölmenni mætti á köldu en fallegu síðdegi á Skautadaginn mikla sem haldin var á Reynisvatni á mánudaginn síðastliðinn.
Á ísnum voru samankomnir ungir sem aldnir, fjölskyldur hverfisins og gestir þeirra. Ánægjan skein af hverju andliti þegar skautarnir voru komnir undir, dreypt var af ilmandi kakóinu eða nartað í sykurristaðar möndlur.


Ingimar Bragi frá Dráttavéladeild borgarinnar hefur séð um að skafa skautasvellið á Reynisvatni, og gerði það af miklum myndarskap fyrr um daginn.
Starfsfólk Sæmundarskóla stóð að þessum skemmtilega atburði sem án efa verður framhald á. Á ísnum var eins og segir boðið uppá heitt kakó, kleinur og ristaðar möndlur. Skautasvell Egilshallarinnar lagði til skauta sem leigðir voru út til viðstaddra. Var ásóknin í skautana svo mikil að keyra þurfti margar ferðir að sækja skauta og komust færri að en vildu.
Gísli Húsvörður í Sæmundarskóla sá um tónlistina sem hljómaði í fjallasölunum umhverfis vatnið og fullkomnaði stemninguna.
Það er óhætt að segja að þetta sé frábært framtak hjá starfsfólki Sæmundarskóla og gleðilegt hvað starfsmenn Egilshallarinnar og Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar tóku vel í samstarf sem gaf af sér þessa skemmtilegu dagsstund.