Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Skrifstofan

Mannréttindaskrifstofa er staðsett í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11.

Þar starfa tveir fastráðnir starfsmenn ásamt mannréttindastjóra. Einnig eru fjórir verkefnaráðnir starfsmenn sem vinna að verkefnum tengdum fjölmenningu, tölvufærni eldri borgara, kynjajafnrétti og kynbundnu ofbeldi.

Helstu verkefni mannréttindaskrifstofu eru:

  • Vinna, ásamt mannréttindaráði, að framkvæmdaáætlun mannréttindamála.
  • Fylgja eftir ákvörðunum mannréttindaráðs.
  • Efla samráð innan borgarinnar í þeim málum sem stefnan nær til.
  • Eiga samvinnu við félög og önnur sveitarfélög í málum sem stefnan nær til.
  • Eiga samráð við tilnefnda mannréttindafulltrúa á sviðunum.
  • Efla samráð í málaflokknum innan borgarinnar.
  • Eiga frumkvæði að verkefnum.
  • Standa vörð um að borgarbúum sé ekki mismunað vegna uppruna, litarháttar, trúarbragða, aldurs, stjórnmálaskoðana, kynferðis, kynhneigðar, efnahags, ætternis, fötlunar, heilsufars eða annarrar stöðu.