Styrkir
Um styrki Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg veitir ár hvert félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda.
Styrkirnir eru ætlaðir viðburðum eða verkefnum sem koma til framkvæmda á næsta ári.
Viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á. Styrkveiting felur ekki í sér fyrirheit um frekari skuldbindingar af hálfu Reykjavíkurborgar nema gerður sé sérstakur samningur þess efnis. Auglýst er eftir styrkjum á haustin og er umsóknarfrestur til 1. október ár hvert fyrir verkefni sem koma til framkvæmda á komandi ári.
Í mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar segir í kafla 9.3:
Styrkir Reykjavíkurborgar eru bundnir því skilyrði að unnið sé gegn mismunun og að jafnrétti. Mannréttindanefnd getur krafið viðtakanda styrks um greinargerð um ráðstöfun hans til að fylgjast með því að hann sé nýttur á jafnréttisgrundvelli.
Reglur mannréttindaráðs um styrkveitingar.
Umsóknareyðublað á word formi.
Umsóknareyðublað á pdf formi.
Hægt er að fylla út pdf umsóknareyðublaðið og senda með því að fara í file og attach to email.