Hlutverk mannréttindaráðs
Hlutverk mannréttindaráðs samkvæmt mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar
Mannréttindaráði ber að:
- sjá til þess að stefnunni sé fylgt eftir,
- vinna sérstaka framkvæmdaáætlun mannréttindamála í samvinnu við svið og
skrifstofur borgarinnar og hagsmunahópa, samhliða starfs- og fjárhagsáætlunum,
- kalla árlega eftir starfsáætlunum sviða í mannréttindamálum,
- kalla árlega eftir skýrslu um framkvæmd mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar frá
öllum sviðum,
- kynna stefnuna og stuðla að þekkingaröflun og miðlun upplýsinga.
Nánari skilgreiningu á hlutverkinu er að finna í samþykkt fyrir mannréttindaráð.