Jákvæður stuðningur við hegðun í frístundastarfi er mikilvægur. Samræmdar aðgerðir starfsfólks, ljósar væntingar til hegðunar og eftirfylgd eykur vellíðan og öryggistilfinningu barna og starfsfólks. Jákvæðan stuðning við hegðun í grunnskólum er auðveldlega hægt að yfirfæra á umhverfi frístundastarfs (sjá forvarnir).
Umhverfið er skipulagt til að hámarka líkur á æskilegri hegðun og skýrar væntingar eru settar fram um hegðun. Væntingarnar ættu að endurspegla þau gildi sem mikilvæg eru starfinu, s.s. virðing, ábyrgð, tillitssemi (sjá einkunnarorð). Sömu gildi eða einkunnarorð í skóla og frístundum getur auðveldað börnum að tileinka sér þau.
Gildin/einkunnarorðin eru kennd öllum börnum. Með góðri kennslu, eftirfylgd og hrósi hámarkar starfsfólk líkur á æskilegri hegðun (sjá kennsla hegðunar, eftirfylgd). Óæskileg hegðun nemenda er skilgreind og hún stöðvuð markvisst samkvæmt agaferli (sjá að stöðva óæskilega hegðun).