Upplýsingar um heimahjúkrun

Heimaþjónusta Reykjavíkur annast heimahjúkrun í Reykjavík og á Seltjarnarnesi. Kvöld- helgar- og næturþjónustu í Mosfellsbæ og næturþjónustu í Hafnarfirði, Kópavogi og Garðabæ.

Heimahjúkrun í Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði er sinnt frá heilsugæslustöðvum í viðkomandi bæjum að öðru leyti en því sem ofan greinir.

Frá Heimaþjónustu Reykjavíkur er veitt hefðbundin heimahjúkrun og heimageðhjúkrun.

Markmiðið er að gera þeim sem þjónustunnar njóta kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest.

Forstöðumaður Heimaþjónustu Reykjavíkur er Berglind Magnúsdóttir en Þórdís Magnúsdóttir stýrir daglegri þjónustu heimahjúkrunar.
Skipurit fyrir Heimaþjónustu Reykjavíkur

Umsóknareyðublað um heimahjúkrun (pdf-skjal)
Umsóknareyðublöð um heimageðhjúkrun sem pdf-skjal

HEIMAHJÚKRUN

Heimaþjónusta Reykjavíkur veitir þjónustu allan sólarhringinn.
Þjónustusvæðinu er skipt í 12 teymi og er umsjónarhjúkrunarfæðingur yfir hverju þeirra.

Hlutverk heimahjúkrunar

Hlutverkiðer að sinna heimahjúkrun á þjónustusvæðinu og hafa yfirsýn yfir þá heilbrigðisþjónustu og meðferð sem skjólstæðingar Heimaþjónustu Reykjavíkur njóta í heimahúsi. Nánar 

Til þess að Heimaþjónusta Reykjavíkur geti sinnt hlutverki sínu þarf : 

  • Nána samvinnu við heilsugæslustöðvar, sjúkrahús og sjálfstætt starfandi heimilislækna.
  • Hæft starfsfólk til að tryggja gæði þjónustunnar.
  • Virka þátttöku í kennslu heilbrigðisstarfsfólks.
  • Rannsóknir til að dýpka skilning og þekkingu og auka gæði þjónustunna
  • Innlent og erlent þverfaglegt samstarf og nána samvinnu við þjónustu- og hagsmunaaðila sem vinna að velferð þeirra sem vilja dvelja sem lengst heima. 

Markmið heimahjúkrunar

Markmið heimahjúkrunar er að veita einstaklingshæfða og markvissa, árangursríka og faglega heimahjúkrun og með því gera þeim sem þjónustunnar njóta kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest.

Einstaklingshæfð og markviss heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins. Unnið er eftir þjónustuferli sem byggir á upplýsingasöfnun, greiningu, markmiðsetningu, áætlun, framkvæmd og mati.

GEÐTEYMI HEIMAHJÚKRUNAR

Í teyminu starfa geðhjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og félagsráðgjafi. Þjónusta er veitt frá kl. 8:00 – 20.00, alla virka daga. Veitt er þjónusta til þeirra einstaklinga 18 ára og eldri sem eiga við geðsjúkdóma að stríða. Unnið er út frá forsendum skjólstæðingsins.

Umsóknareyðublað um heimageðhjúkrun sem pdf-skjal

 


Hér má sjá þjónustuþætti



Eyðublöð

Umsókn um heimahjúkrun (pdf skjal)

Umsókn um heimageðhjúkrun (pdf skjal)