Miklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar á Klapparstíg nú í sumar en hann verður endurnýjaður frá grunni ofan Laugavegar að Skólavörðustíg. Útlit götunnar að loknum framkvæmdum verður svipað og er á Skólavörðustíg. Allt yfirborð götu og gangstétta verður endurnýjað og snjóbræðsla kemur í götu og gangstéttar.
Dagbjartur Sigurbrandsson hefur stýrt umferðarljósunum í Reykjavík i 41 ár og á þeim tíma hafa orðið gríðarlegar breytingar á tækni á bak við umferðarljós og stýringu þeirra. Á næstunni lætur Dagbjartur af störfum eftir farsælan og ánægjulegan tíma og af því tilefni var honum haldið kveðjuhóf af samstarfsmönnum.
Unnið er að snjóhreinsun með öllum tiltækum mannskap og tækjum í í samræmi við viðbragðáætlanir Reykjavíkurborgar. Starfsmenn sem vinna við að halda götum opnum og greiðfærum eru yfir hundrað talsins og hafa ekki verið fleiri í vetur. Allar stofnleiðir og helstu umferðargötur eru vel færar.
Skoða allar fréttir
Framkvæmda- og eignasvið
Borgartún 12-14Sími 411 1111