Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Nýjar skólabyggingar teknar í notkun í haust

09.08.2010

Upplestur á frétt 

Í haust hefst skólastarf í þremur nýjum skólabyggingum í Reykjavík; Dalskóla, Sæmundarskóla og Norðlingaskóla. Skólastarf hefur verið í bráðabirgðahúsnæði í Norðlingaskóla undanfarin ár, en í fyrra hófst kennsla í fyrsta hluta nýrrar byggingar í Sæmundarskóla.

Dalskóli, sem er samrekinn leikskóli, grunnskóli og frístundaheimili í Úlfarsárdal, tekur til starfa í nýrri og glæsilegri skólabyggingu. Á þriðja tug grunnskólanemenda setjast þar á skólabekk í haust, en að auki hafa 50 leikskólabörn verið innrituð í skólann. Skólastarf í Norðlingaholti og í Sæmundarskóla verður í vetur að hluta til í nýju skólahúsunum, en stefnt er að því að fullgera þau fyrir árslok 2012.

Um 14.000 nemendur hefja nám í 37 almennum grunnskólum í Reykjavík 23. ágúst, þar af eru 1.460 börn að hefja nám í 1. bekk. Rúmlega 400 nemendur eru skráðir í sex sjálfstætt starfandi skóla í borginni og á annað hundrað grunnskólanemendur stunda nám í þremur sérskólum.

Undirbúningsstarf fyrir skólabyrjun er í fullum gangi og verða skólarnir settir mánudaginn 23. ágúst.