Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Mikill kraftur í Breiðholti

17.08.2010

Upplestur á frétt 

Reykjavíkurborg framkvæmir fyrir nær 550 milljónir í ár á fjölmörgum stöðum í Breiðholti. Sérstök áhersla verður lögð á leikvelli og opin svæði, sem og endurgerð gönguleiða. Við skólana verður umhverfið einnig fegrað og endurbætt.  Þá verður farið í viðhaldsverkefni á 38 fasteignum. Segja má að þessi verkefni séu mannaflsfrekar framkvæmdir.  

Betri skólalóðir
Af nýframkvæmdum og endurgerð er áhersla á endurbætur skólalóða Fellaskóla og Breiðholtsskóla og verður sett boltagerði (battavöllur) við Ölduselsskóla. Lokið verður við framkvæmdir á lóð við félagshús Leiknis við Austurberg.

Betri leiksvæði og gönguleiðir
Sérstakur átakshópur vinnur þessa daga við að laga leiksvæði í Breiðholti, körfur og mörk, mála leiktæki, fegra og snyrta. ,,Ég hefði að sjálfsögðu viljað sjá þessi verkefni kláruð fyrr" segir Jón Gnarr borgarstjóri. En á móti kemur að það þurfti að fara í grunnvinnu eins og lagfæringar á hellulögnum áður en hægt var að ráðast í þetta. Nú vona ég að allir verði glaðir"

Fleiri verkefni tengd leiksvæðum eru í undirbúningi og á hönnunarstigi. Einnig verður lokið við hreinsun tjarnar í Seljahverfi, en þar tók áhugafólk til hendinni fyrr í sumar.

Í átaksverkefnunum er hlúð að útivistarmöguleikum. Nestisaðstaða verður sett upp á tveimur stöðum og einnig verður á tveimur stöðum komið fyrir trimmaðstöðu. Í haust verður í samráði við hverfaráð unnið að gróðursetningu.

Á næstu dögum hefjast framkvæmdir við endurgerð gangstétta í Arnarbakka, Leirubakka og Maríubakka. Einnig verða stígar í Bökkunum endurgerðir. Fyrr í sumar voru endurnýjuð slitlög í Bakkaseli, Gilsárstekk, Hólmaseli, Tungubakka og Urðarbakka.

Viðhald og endurbætur
Til viðhaldsverkefna verður varið 95 milljónum og skiptast þær á 38 fasteignir. Jafnframt verður unnið að endurbótum eldvarna í Breiðholtsskóla og Seljaskóla, auk þess sem þar verður einnig unnið að endurbótum íþróttahúss.