Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Söluturninn aftur á Lækjartorg

20.08.2010

Upplestur á frétt 

Söluturninn sem stóð í Mæðragarðinum er kominn aftur á Lækjartorg þar sem hann upphaflega stóð. Framkvæmda- og eignasvið flutti turninn í gærkvöldi, en borgarráð samþykkti flutning á fundi sínum í gær og er staðsetningin samkvæmt gildandi skipulagi.

,,Ég fagna því að turninn sé kominn á sinn gamla stað. Hann er til prýði á torginu og mun örugglega vekja upp minningar í hugum margra borgarbúa.“ segir Jón Gnarr, borgarstjóri.


Söluturninn var reistur á Lækjartorgi fyrir konungskomuna árið 1907. Rögnvaldur Ólafsson teiknaði húsið, sem er áttstrent. Turninn er tvær hæðir og samtals 9,6 fermetrar samkvæmt Fasteignaskrá. Fyrsti eigandi söluturnsins var Einar Gunnarsson ritstjóri. Ýmis ski1yrði voru sett fyrir rekstri söluturnsins í upphafi og skyldi þar vera sendisveinamiðstöð, talsími fyrir almenning og sala a frímerkjum og bréfspjöldum, aðgöngumiðum að skemmtunum, en engin sala önnur. Margvísleg starfsemi hefur tengst turninum í gegnum tíðina, meðal annars var þar afgreiðsla fyrir leigubíla árið 1920.

Borgaryfirvöld hafa hug á því að finna turninum verðugt hlutverk til framtíðar, en um helgina verður núverandi leigjandi turnsins með sömu starfsemi og verið hefur í Mæðragarðinum.