Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Umferðarljós gatnamóta Miklubrautar og Grensásvegar endurbætt

30.08.2010

Upplestur á frétt 

Í fyrramálið, þriðjudaginn 31. ágúst  verða umferðarljós á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar endurbætt. Vinna við ljósin hefst kl. 10 og gert er ráð fyrir að henni verði lokið klukkustund síðar. Ljósin verða óvirk þann tíma og umferðarstjórn í höndum lögreglu.  Hraði er takmarkaður við 30 km/klst og jafnframt verður umferð frá Grensásvegi inn á Miklubraut eingöngu leyfð til hægri, þ.e. ekki verður heimilt að aka þvert yfir Miklubraut. Vinstri beygja frá Miklubraut inn á Grensásveg er einnig bönnuð meðan ljósin eru óvirk.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða hraðatakmarkanir.

Umferð úr gagnstæðri átt aðskilin með ljósum

Gatnamótin eru með þeim umferðarþyngri í borginni og meginmarkmið breytinganna núna er að draga úr hættu með því að aðskilja gagnstæða umferð. Fösum eða þrepum í stýringu umferðarljósanna á gatnamótunum verður fjölgað úr þremur í fjóra. Eftir breytingu á stýribúnaði ljósanna verður vinstribeygjuumferð af Grensásvegi aðskilin frá umferð úr gagnstæðri átt.
Einnig verða settir upp snertihnappar fyrir gönguljós með titringi og hljóði og gagnast það einkum blindum og sjónskertum,  sem og heyrnarlausum.