Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Unnið við forgangsreinar strætó í Lækjargötu

03.09.2010

Upplestur á frétt 

- Sjá nýrri frétt um fyrirkomulag umferðar í Lækjargötu -

Næstu vikurnar verður unnið í Lækjargötu að gerð forgangsakreina fyrir Strætó. Vegna þessara framkvæmda verða tímabundnar þrengingar í Lækjargötu og hámarkshraði umferðar er færður niður í 30 km/klst. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum vegna framkvæmda og ökumenn jafnframt eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi.

Rauður dregill fyrir Strætó

Forgangsreinarnar sem unnið er við núna ná annars vegar frá Bókhlöðustíg að Bankastræti og hins vegar frá Tryggvagötu að Bankastræti.  Á næsta ári er gert ráð fyrir að endurnýjað verði yfirborð gatnamóta Lækjargötu og Austurstræti / Bankastræti og þau felld að hinnu nýju götumynd.

Núverandi útskot fyrir Strætó við Amtmannsstíg og Lækjartorg verða aflögð þar sem vagnarnir munu stöðva á forgangsakreininni. Snjóbræðsla verður sett þar sem útskotin eru nú og lagnir tengdar snjóbræðslu í götunni.

Framkvæmdir munu standa yfir til loka september, svo fremi sem veður tefji ekki malbikunarframkvæmdir.

Áætlaður kostnaður er 23 milljónir.

Verkumsjón: Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar.

Framkvæmdaeftirlit
: Verkís
Eftirlitsmenn: Sveinn Ragnarsson, sími 4228482, farsími 8686638 og netfang sr@verkis.is
Guðni Eiríksson, sími: 4228483, farsími: 8246307, netfang: ge@verkis.is

Verktaki: Malbikunarstöðin Hlaðbær Colas hf.

Hönnuður: Hnit hf.

Helstu magntölur
Malbik rautt 850 fermetrar
Hellu- og steinlagnir 360 fermetrar
Snjóbræðsla 140 fermetrar
Grásteinskantur, lögn 85 metrar

Áætluð verklok fyrir lok september 2010.

Á myndinni fyrir neðan er yfirlit yfir framkvæmdasvæðið í Lækjargötu.

Vinnusvaedi vegna forgangsreina fyrir Strætó

Verkskilti