Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Sleitulaust unnið við snjóhreinsun og hálkuvarnir

18.01.2012

Upplestur á frétt 

Í nótt var snjór ruddur og salti dreift á stofnbrautir og helstu umferðaræðar og eru stóru snjóruðningstækin áfram í þeim verkefnum einkum í efri byggðum borgarinnar. Samhliða því er verið að dreifa sandi við skóla, leikskóla og sundlaugar um alla borg.

Almenn ánægja er meðal íbúa að geta sótt sér sand og salt til hverfastöðvanna. Íbúar eru hvattir til að nýta sér þessa þjónustu. Sjá upplýsingar um staðsetningu hverfastöðvanna og þjónustutíma þeirra

Áfram er unnið við að ná niður klaka í húsagötum með heflum og öðrum stórvirkum vinnutækjum. Í dag er unnið í Árbænum, Grafarvogi, Vogum, Sundunum, Hlíðum og Vesturbænum en í gamla bænum er víða erfitt að komast að með stórvirk tæki vegna þrengsla og miðar því verki hægt en þó örugglega.

Bílar með sandreifara eru gerðir út frá hverfastöðvunum, auk minni tækja þar sem erfitt er að komast að með stór tæki.  Þá eru átta traktorar á gönguleiðum við söndun og snjóruðning á helstu gönguleiðum og er þar unnið samkvæmt forgangsáætlun.
Símaver Reykjavíkurborgar tekur við ábendingum í síma 411 11 11 og á netfangið upplysingar@reykjavik.is   Í dag eru 52 starfsmenn Reykjavíkurborgar og verktaka á hennar vegum vinna við snjóhreinsun og hálkuvarnir og hafa þeir 30 tæki til afnota. 

 

>> Almennar upplýsingar um snjóhreinsun og hálkueyðingu