Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Klapparstígur tekinn í gegn

08.02.2012

Upplestur á frétt 

Miklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar á Klapparstíg nú í sumar en hann verður endurnýjaður frá grunni ofan Laugavegar að Skólavörðustíg.  Útlit götunnar að loknum framkvæmdum verður svipað og er á Skólavörðustíg. Allt yfirborð götu og gangstétta verður endurnýjað, ásamt lögnum sem komnar eru á tíma. Þá verður sett snjóbræðsla í götu og gangstéttar.  Gönguleiðir verða breikkaðar og akbraut mjókkuð, auk þess sem hún verður upphækkuð á gatnamótum.

Meginþungi framkvæmda verður frá miðjum marsmánuði til loka júní. Þá verður aðeins eftir að gróðursetja og er sá verkþáttur tímasettur í lok september. Kynning á framkvæmdinni hefur verið send til íbúa og hagsmunaaðila. Verkið verður boðið út á næstunni í takt við innkaupareglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar er að finna á upplýsingasíðu í Framkvæmdasjá. Opna vefsíðuna Klapparstígur ofan Laugavegar – endurgerð 2012