Göngu- og hjólastígar

Með uppbyggingu göngu- og hjólastígakerfis Reykjavíkur er íbúum og gestum gert kleift að ferðast hjólandi eða gangandi um borgina á öruggan, aðlaðandi og vistvænan máta. Víða eru göngubrýr eða undirgöng undir umferðaræðar og stígar eru lagðir um vinsælar útivistarperlur eins og Elliðaárdalinn og Ægissíðu.
Hjólakort
Hjólavefsjáin, www.hjolavefsja.is, er gagnvirkur vefur á vegum Ride The City sem sýnir borgarbúum á einfaldan hátt hvernig hjólafólk kemst frá A til B á sem fljótlegastan og öruggastan hátt. Borgarbúar geta slegið inn upphafsstað og leiðarenda, og vefurinn sýnir um leið fljótlegustu leiðina, öruggustu leiðina, vegalengd og ferðatíma. Það var Jón Gnarr borgarstjóri sem afhenti Open Street Map á Íslandi götugögn Reykjavíkurborgar án endurgjalds til þess að leiðavalið byggi á bestu upplýsingum hverju sinni. Reykjavíkurborg fékk um leið að gjöf lénið hjolavefsja.is frá sama aðila.
- Heildarkort af höfuðborgarsvæðinu 2011 (PDF útgáfa - 5,3 MB)
- Hjólastígakort við Árbæjarstíflu 2011 (PDF útgáfa - 2,9 MB)
- Hjólastígakort við Breiðholtsbraut 2011 (PDF útgáfa - 2,9 MB)
- Hjólastígakort við Gullinbrú 2011 (PDF útgáfa - 2,8 MB)
- Hjólastígakort við Korpúlfsstaði 2011 (PDF útgáfa - 2,3 MB)
- Hjólastígakort við Nauthólsvík 2011 (PDF útgáfa - 2,4 MB)
- Hjólastígakort við Rauðavatn 2011 (PDF útgáfa - 2,8 MB)
- Hjólastígakort við Reykjanesbraut 2011 (PDF útgáfa - 2,7 MB)
- Hjólastígakort við Suðurlandsbraut 2011 (PDF útgáfa - 2,7 MB)
- Hjólastígakort í Vesturbæ 2011 (PDF útgáfa - 2,3 MB)
Áningarstaðir
Sex áningarstaðir eru nú við stígakerfið, þar sem vegfarendur geta kastað mæðinni og notið útsýnisins, skoðað göngu- og hjólastígakort fyrir höfuðborgarsvæðið og gripið í nesti. Staðsetning áningarstaða er valin með tilliti til hvar þeir koma flestum til góða, en ekki síður hvernig tekið er á móti ferðamönnum sem koma hjólandi að borgarmörkum og þeim vísað af umferðaræðum inn á stígakerfi borgarinnar. Áningarstaðirnir eru hannaðir af Kjartani Mogensen landslagsarkitekt.
|
 Í Nauthólsvík
|
 Við Ægissíðu
|
|
 Við Gullinbrú
|
 Við Suðurlandsbraut
|
|
 Í Elliðaárdal
|
 Við Ánanaust
|
Kortin
Á hverjum áningarstað er kortastandur með tveimur kortum. Öðru megin er yfirlitskort fyrir Höfuðborgarsvæðið, en hinumegin er kort sem sýnir næsta nágrenni með ítarlegum upplýsingum. Yfirlitskortið sýnir tegund, númer og lengdir stíga; áningarstaði, sjúkrahús, flugvelli og tjaldstæði. Deilikortin sýna hins vegar næstu tvo til fjóra kílómetra út frá áningarstað, með nánari upplýsingum fyrir ferðamenn: söfn, kirkjur, sundlaugar og fleira. Einnig eru bekkir við stíga merktir inn á deilikortin og táknmyndir bygginga, sem hægt er að nota sem kennileiti.
Merkingar og númer
Göngu- og hjólastígakerfi Reykjavíkur er unnið eftir danskri fyrirmynd og er byggt upp á sama hátt og númerakerfi íslenska vegakerfisins. Númerakerfið er sameiginlegt fyrir allt Höfuðborgarsvæðið og reyndar er mögulegt að nota það fyrir göngu- og hjólastíga á landinu öllu.
Unnið er að uppbyggingu og viðhaldi stígakerfisins á hverju ári og eru kortaupplýsingar á áningarstöðum og á vefnum uppfærðar í samræmi við þá vinnu.
