Landupplýsingakerfi Reykjavíkur

LUKR er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Mílu ehf. um að reka samræmt og samtengt landupplýsingakerfi fyrir alla borgina. Landupplýsingar á Framkvæmda- og eignasviði eru í forsvari fyrir verkefnið, annast rekstur þess og veita allar upplýsingar um það (lukr@rvk.is).
Landupplýsingakerfi (einnig nefnd landfræðileg upplýsingakerfi) eru tölvukerfi ætluð til innsetningar, samtengingar og úrvinnslu á bæði myndrænum gögnum og textagögnum sem eiga það sameiginlegt að tengjast ákveðnum stöðum eða svæðum. Gagnasöfn LUKR eru mjög yfirgripsmikil og í stöðugum vexti. Þau skiptast í mörg svonefnd gagnaþemu sem hvert um sig geymir upplýsingar um ákveðna tegund landupplýsinga, til dæmis byggingar, lóðamörk, hæðarlínur, götukanta og fleira.
Upplýsingunum má skipta í grafískar upplýsingar og tengdar upplýsingar eða eigindir. Útlínur húss með staðsetningum í hnitakerfi borgarinnar eru dæmi um hið fyrrnefnda en ýmsar upplýsingar sem tengjast húsinu eru dæmi um hið síðarnefnda.
Borgarstofnanirnar sem hafa frá upphafi verið þátttakendur í LUKR eru Framkvæmda- og eignasvið, Skipulags- og byggingarsvið og Orkuveita Reykjavíkur. Síminn hefur einnig tekið þátt frá upphafi.