Miðja búsetu
Búseta færist norður
Nýjustu útreikningar Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar sýna að þungamiðja búsetu á höfuðborgarsvæðinu í heild sinni er í suðaustur-horni stofunnar að Haðalandi 6 í Reykjavík og hefur færst um 80 metra til austurs frá fyrra ári.
Þungamiðja búsetu í Reykjavík í apríl 2010 er ennþá inni á austanverðri skólalóð MS og Vogaskóla, en hefur færst um 25 metra til norðurs frá árinu 2009. Þetta er viðsnúningur frá þróun síðustu tveggja ára, en þá var miðjan að þokast í suður.
Þungamiðja búsetu á höfuðborgarsvæðinu er fundin út frá staðsetningu heimilisfanga allra íbúa á svæðinu. Þungamiðja búsetu í Reykjavík er fundin út með sömu aðferð, en mælingar hófust árið 2002.
Þungamiðja búsetu á höfuðborgarsvæðinu (pdf skrá, 221 Kb)
Þungamiðja búsetu í Reykjavík (pdf skrá, 260 Kb)
Útreikningar á grundvelli kortagrunns Landupplýsingakerfis Reykjavíkur
Þungamiðja búsetu er reiknuð á grundvelli kortagrunns Landupplýsingakerfis Reykjavíkur (LUKR) og heimilisfangasafns Samsýnar ehf. Safnið hefur að geyma staðsetningar á hnitum á heimilum allra íbúa á höfuðborgarsvæðinu og er stöðugt uppfært með nýjustu upplýsingum úr Þjóðskrá og LUKR. Höfuðborgarsvæðið nær yfir öll sveitarfélög frá Kjós til Hafnarfjarðar, að báðum meðtöldum. Þungamiðjan er meðaltal allra fyrrnefndra hnita, að teknu tilliti til mismunandi fjölda heimilismanna á hverjum stað.