Skrifstofa gatna- og eignaumsýslu
Skrifstofustjóri: Sighvatur Arnarsson, sighvatur.arnarsson@reykjavik.is
Skrifstofa gatna- og eignaumsýslu sér um rekstur og viðhald gatna, gangstíga, opinna svæða og fasteigna í eigu eignasjóðs Reykjavíkurborgar. Skrifstofan skiptist í gatnadeild, byggingadeild, útboðs- og áætlanadeild og eignaumsýsludeild.

Helstu verkefni vegna reksturs og viðhalds gatnakerfisins:
- Viðhald og rekstur gatna, gönguleiða og opinna svæða.
- Sópun og hreinsun gatna, hreinsun veggjakrots og grasslátur á opnum svæðum.
- Snjómokstur og hálkueyðing, hreinsun og raflýsing gatna og gönguleiða.
- Umferðarmerkingar, rekstur og viðhald umferðarljósa.
- Náðhús og ýmis verkefni vegna viðburða innan borgarinnar.
- Rekstur hverfastöðva Njarðargötu, Miklatúni, Jafnaseli og Stórhöfða ásamt þjónustumiðstöðvar í Stórhöfða.
- Gerð fjárhagsáætlana, kostnaðar- og greiðsluáætlana og kostnaðareftirlit.
- Framkvæmd viðhalds- og rekstrarverka, umsjón og eftirlit, lokaúttekt og uppgjör verka.
Helstu verkefni vegna viðhalds og reksturs fasteigna:
- Hönnun viðhaldsverka, gerð fjárhagsáætlana, kostnaðar- og greiðsluáætlana og kostnaðareftirlit.
- Framkvæmd viðhaldsverka, umsjón, eftirlit og uppgjör þeirra.
- Rekstur útibúa frá byggingadeild í hverfastöðvum Njarðargötu, Miklatúni, Jafnaseli og Stórhöfða.
- Gerð leigusamninga, innheimta leigu, greiðsla opinberra gjalda, tryggingar o.fl.
- Viðhald á miðlægum gagnagrunni um fasteignir Reykjavíkurborgar.