Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Helstu framkvæmdir 2010

Helstu framkvæmdir 2009

Í áætlun fyrir árið 2010 er gert ráð fyrir 2.500.000 þús. kr. í byggingaframkvæmdir og 2.055.000 þús. kr. í gatnaframkvæmdir.

Framkvæmdaáætlun ársins 2010 leggur megináherslu á eftirfarandi:

Byggja upp skóla í nýjum hverfum borgarinnar
Haustið 2010 verður Í Úlfarsárdal tekinn í notkun samrekinn leik– og grunnskóli, ásamt frístundaheimili. Áfram verður unnið að uppbyggingu Sæmundarskóla og Norðlingaskóla og á næsta skólaári er fyrirhugað að taka í notkun annan áfanga Sæmundarskóla og fyrsta áfanga Norðlingaskóla.

Ljúka frágangi og halda áfram uppbyggingu í nýjum hverfum borgarinnar
Áfram verður unnið við stígagerð, frágang og ræktun í nýbyggingarhverfum eins og Úlfarsárdal og Norðlingaholti.

Meiriháttar endurbætur og viðhald undir merkjum Völundarverks
Sinna á meiriháttar endurbótum og viðhaldi á gömlum húsum undir merkjum Völundarverks - Reykjavík. Helstu verkefni eru Laugavegur 4 og 6, Norðurpóllinn og þá verður Gröndalshús flutt og endurgert. Einnig endurbygging á timburhluta Lækjargötu 2.

Átaksverkefni við meiriháttar viðhald og endurbætur
Í samstarfi við Vinnumálastofnun verður farið í átaksverkefni sem felst í meiriháttar viðhaldi og endurbótum á eignum Reykjavíkurborgar. Dæmi um slíkt verkefni er endursmíði hluta glugga í Austurbæjarskóla.

Innleiðing grænna samgangna
Áfram verður unnið að uppbyggingu og endurbótum á aðalgöngu og hjólastígum, s.s. hjólastígur í Fossvogsdal. Þá verður einnig áfram lögð áhersla á að veita strætó forgang í umferðinni og eru þau verkefni í samvinnu við Vegagerðina.