Um Borgarvefsjá

Útgáfa 3.0 byggir á nýjasta vefhugbúnaði, ArcGIS Server, frá ESRI. Alls eru núna veittar upplýsingar um fimmtán efnisflokka sem heita: Á döfinni, Borgarskipting, Götur og stígar, Hús og lóðir, Lagnir, Menningarminjar, Myndefni, Mælipunktar, Náttúrufar, Nýframkv./viðhald, Saga og þróun, Svæðisskipulag, Umferð og aðgengi, Þjónusta og Þungamiðjur búsetu.
Í hverjum flokki eru eitt eða fleiri upplýsingaþemu, en upplýsingar um þau ásamt ýmsum almennum upplýsingum um Borgarvefsjá fást með því að smella á "Hjálp".
Gagnagrunnar LUKR eru stöðugt uppfærðir og eiga því ávallt að veita nýjustu fáanlegar upplýsingar. Auðvelt er að bæta við nýjum atriðum af ýmsu tagi, og má gera ráð fyrir að Borgarvefsjá haldi áfram að taka örum breytingum, þannig að hún þjóni sem best þörfum íbúa borgarinnar á hverjum tíma.
Tengillinn "Um notkun korta" veitir almennar upplýsingar um gögn LUKR og notkunarskilmála kortanna. Loks fæst margvíslegur fróðleikur um notkun Borgarvefsjár með því að smella á "Notkun s.l. 12 mán.".
Þessi útgáfa Borgarvefsjár er unnin af Samsýn ehf. í samstarfi við Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkur, Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur, Upplýsingatæknimiðstöð Reykjavíkurborgar og Orkuveitu Reykjavíkur, en þessar borgarstofnanir/ -fyrirtæki eru aðilar að LUKR. Framkvæmda- og eignasvið hafði heildarverkstjórn á hendi og Guðmundur R. Einarsson sá um útlitshönnun.
Fyrsta útgáfa Borgarvefsjár kom út í des. 1999 og hefur verið í stöðugri þróun síðan.