Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Stýrihópur um búsetumál eldri borgara

Búsetuúrræði

Á fundi borgaráðs þann 4. september 2008 var samþykkt að neðantaldir skipi stýrihóp um búsetuúrræði fyrir eldri borgara. Vilhjálmur þ. Vilhjálmsson, setti á fót stýrihópinn í upphafi kjörtímabils í júní 2006.

Stýrihópinn skipa:

  • Jórunn Frímannsdóttir, formaður stýrihóps og Velferðarráðs
  • Óskar Bergsson, formaður borgarráðs
  • Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar
  • Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi
  • Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi
  • Verkefnisstjóri er Guðmundur Pálmi Kristinsson


Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri Framkvæmdasviðs,
og Stella K. Víðisdóttir, sviðstjóri Velferðarsviðs, starfa með stýrihópnum



Hlutverk:

Að vinna að auknum og bættum búsetuúrræðum fyrir eldri borgara og hafa umsjón með framkvæmdum í þágu aldraðra. Auk þess að fjalla um úthlutunarskilmála, fjárhagslegar forsendur og samninga um framkvæmdir í þágu eldri borgara.

Helstu verkefni:

1. Að áætla þörf fyrir hjúkrunarheimili, þjónustuíbúðir, öryggisíbúðir, þjónustukjarna, söluíbúðir og önnur úrræði sem eru brýn fyrir aldraða í borginni.
2. Gera tillögur um uppbyggingu og framkvæmdir á næstu árum á grundvelli þarfagreiningar. Unnið sé út frá því markmiði að eldri borgarar geti búið sem lengst heima.
3. Fjalla um val á samstarfsaðilum, úthlutunarskilmála vegna lóða, fjárhagslegar forsendur og samninga um framkvæmdir í þágu aldraðra.
4. Finna bestu kosti í uppbyggingu búsetuúrræða fyrir eldri borgara. Markmiðið er að:
a. Halda áfram þeirri uppbyggingu sem hófst á árinu 2006 með samningum sem gerðir voru við Hrafnistu og Eir.
b. Byggðar verði 200-300 þjónustuíbúðir til ársins 2010 á viðráðanlegu verði fyrir eldri borgara. Hlutfall eignar- og leiguíbúða fari eftir þörf hverju sinni.
c. Fjölga dagvistar- , hvíldar- og hjúkrunarrýmum í samvinnu við heilbrigðisyfirvöld
d. Að samráð verði haft við eldri borgara varðandi ofangreind atriði.