Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Betra húsnæði - lengur heima

Betra húsnæði

Margir búa í húsnæði sem af ýmsum ástæðum hentar illa fólki á efri árum. Þröskuldar eru til trafala, stigar geta verið erfið hindrun og sturta myndi henta betur en baðkar, svo dæmi séu nefnd. Stýrihópur um búsetumál eldri borgara lét því fara fram könnun meðal eldri borgara í Vesturbæ Reykjavíkur á hug þeirra til þess að gera breytingar á húsnæði sínu með það að leiðarljósi að geta búið lengur heima og þurfa ekki að fara í þjónustuíbúð eða í dvalarrými. Athugunin var gerð meðal fólks sem var á biðlista eftir þjónustuíbúð hjá Reykjavíkurborg.

Í ljós kom að flestir myndu kjósa að búa lengur heima og 54 prósent sögðust vilja breyta húsnæði sínu í því skyni. Skortur á lyftu og nauðsynlegar breytingar á snyrtingu voru oftast nefnd sem fyrirstaða þess að geta búið lengur heima.

Á vegum stýrihópsins er nú verið að kanna möguleika á að aðstoða eldri borgara við að framkvæma og fjármagna breytingar af þessu tagi svo þeir geti búið lengur heima. Meðal kosta sem ræddir hafa verið er að Reykjavíkurborg og ríkið veiti styrki til slíkra breytinga.