Öryggissími

Markmiðið með öryggissíma er að veita fólki aukið öryggi og þjónustu þegar það hefur þörf fyrir hana, ýmist með því að leysa úr vanda þess í gegnum síma eða senda starfsfólk á vettvang ef þess gerist þörf.
Könnun sem stýrihópur um búsetumál eldri borgara lét gera sýnir að ríflega þrír af hverjum fjórum myndu vilja fá öryggissíma í íbúð sína stæði það til boða.