Heimahjúkrun og heimaþjónusta

Markmið félagslegrar heimaþjónustu er að efla einstaklinginn til sjálfsbjargar, koma í veg fyrir félagslega einangrun og gera honum kleift að búa sem lengst á eigin heimili við sem eðlilegastar aðstæður. Félagsleg heimaþjónusta er fyrir þá sem geta ekki séð hjálparlaust um heimilishald og persónulega umhirðu vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, fötlunar, veikinda eða barnsburðar. Félagsleg heimaþjónusta getur falið í sér aðstoð við athafnir daglegs lífs og heimilishald, aðstoð við umönnun barna, heimsendingu matar og félagslegan stuðning af ýmsu tagi. Sótt er um þjónustuna í þjónustumiðstöð í viðkomandi hverfi.
Markmið heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða og markvissa, árangursríka og faglega heimahjúkrun og gera þannig þeim sem þjónustunnar njóta kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður þrátt fyrir veikindi eða heilsubrest. Einstaklingsmiðuð og markviss heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins. Unnið er eftir þjónustuferli sem byggir á upplýsingasöfnun, greiningu, markmiðssetningu, áætlun, framkvæmd og mati.
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og miðstöð heimahjúkrunar hafa unnið að því að samþætta heimahjúkrun og heimaþjónustu. Nú hefur heimahjúkrun og heimaþjónusta verið sameinuð með gerð samnings milli heilbrigðisráðherra og borgarstjóra.