Úttektarvefur LUKR
Landupplýsingakerfi Reykjavíkur geymir viðamiklar landfræðilegar upplýsingar um götur, byggingar, lóðir, hæðalínur, lagnakerfi o.fl. í Reykjavík. Þessi gögn eru á stafrænu formi sem notendum gefst kostur á að sækja í gegnum úttektarsíður.
Til að geta tekið út gögn þarf fyrst að skrá sig hjá Landupplýsingum á Framkvæmda- og eignasviði með því að senda tölvupóst á netfangið lukr3w@rvk.is. Einnig má senda ábendingar og athugasemdir á sama netfang. Upplýsingar um verð má finna hér.
Úttektarsíða LUKR
Á þessari úttektarsíðu er hægt að nálgast LUKR gögn á shape eða dxf formi og með því að afmarka svæði á kortaglugga.
Opna úttektarsíðu >>>
ATH! Eldri úttektarsíða er óvirk, notið þá nýju