Völundarverk

Völundarverk - Reykjavík (áður Hallandverkefnið) er atvinnuátaksverkefni sem stuðlar að því að viðhalda þekkingu á viðhaldi og endurgerð sögufrægra gamalla húsa og/eða mannvirkja í Reykjavík. Átakið er byggt á reynslu annarra þjóða, sérstaklega svokölluðu Hallandverkefni frá Svíþjóð, og á að hafa það að meginmarkmiði að treysta menningarauð borgarinnar í gegnum endurbyggingu, viðhald og verndun mikilvægra húsa og annarra minja í Reykjavík. Með verkefninu geta skapast störf, samhliða því að auka á menntun og reynslu fagstétta á borð við arkitekta, verk-/tæknifræðinga og iðnaðarmanna við endurgerð gamalla húsa. Einnig er lögð áhersla á að þau verkefni sem verða fyrir valinu verði tryggð starfsemi að endurgerð lokinni enda besta aðferðin til þess að tryggja líf og viðhaldi þeirra í framtíðinni. Það má draga saman framangreint með einkunnarorðum Hallandverkefnisins í Svíþjóð en þar var lögð áhersla á að það ætti að:
- Bjarga störfum, bjarga handverki, bjarga húsum
Verkefnið er samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar, Vinnumálastofnunar (VMST), Minjasafns Reykjavíkur og IÐUNNAR Fræðsluseturs. Í yfirstjórn þess sitja fyrir hönd borgarráðs þeir Óskar Bergsson (formaður), Júlíus Vífill Ingvarsson og Þorleifur Gunnlaugsson og Snorri Freyr Hilmarsson frá menntamálaráðuneyti. Í verkefnisstjórn, sem fer með daglegan rekstur verkefnisins, eru þau Margrét Leifsdóttir frá Skipulags- og byggingasviði Reykjavíkurborgar, Guðbrandur Benediktsson frá Árbæjarsafni og Ólafur Ástgeirsson frá IÐUNNI fræðslusetri, tilnefndur af Samiðn, Samtökum Iðnaðarins og Meistarasambandi byggingamanna. Verkefnisstjóri er Örn Baldursson frá Framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar.
Verkefnið sjálft er tvíþætt. Annars vegar undirbúningsnámskeið (1 mánuður) og hins vegar tímabundin störf þátttakenda á byggingarstað/hönnunarstofu að því loknu (2-5 mánuðir).
Námskeið
Á námskeiðinu verður farið yfir byggingarsögu, reglugerðir og þær útfærslur allra byggingarhluta sem notaðar voru á húsum/mannvirkjum þess tíma sem fjallað er um. Námskeiðið skiptist í bók- og verklegan hluta og fer fram á Árbæjarsafni þar sem nemendur geta skoðað útfærslurnar, sem fjallað er um á námsskeiðinu, á staðnum. Einnig verður farið á byggingarstaði þar sem er verið að endurgera gömul hús þannig að nemendur geti fylgst með framkvæmdum. Verklegi hluti námskeiðsins felst í endurgerð og á verkstæði Þjónustu- og verkbækistöð Reykjavíkur á Stórhöfða.
Nánar um námskeið >>>
Umsóknareyðublöð má nálgast hér >>>
Vinna á byggingarstað/hönnunarstofu
Iðnmenntaðir þátttakendur fari á byggingarstaði að vinna við ákveðin verkefni tímabundið að námskeiði loknu. Hugmyndir um verkefni eru t.d. Laugavegur 4-6, Gröndalshús (Vesturgata 16B) og Norðurpóll (Hverfisgata 125) svo eitthvað sé nefnt. Hönnuðir fari í tímabundna vinnu til þeirra hönnunarstofa sem verða valdar til þess að hanna þau verkefni sem á að endurgera.
Nánar um verkefni >>>