Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Námskeið

Völundarverk

Á námskeiðinu verður farið yfir byggingarsögu, reglugerðir og þær útfærslur allra byggingarhluta sem notaðar voru á húsum/mannvirkjum þess tíma sem fjallað er um. Námskeiðið skiptist í bók- og verklegan hluta og fer fram á Árbæjarsafni þar sem nemendur geta skoðað útfærslurnar á staðnum sem fjallað er um á námsskeiðinu. Einnig verður farið á byggingarstaði þar sem er verið að endurgera gömul hús þ.a. nemendur geti fylgst með framkvæmdum. Í bóklega hlutanum verður m.a. farið yfir byggingarsögu, reglugerðir, uppmælingar, húsflutninga og uppbyggingu og frágang byggingarhluta. Verklegi hlutinn námskeiðsins felist í endurgerð eldra húss og á verkstæði Þjónustu- og verkbækistöð Reykjavíkur á Stórhöfða. Nánar um námskeiðið og skráningu á heimasíðu IÐAN, www.idan.is.   Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur 1. október næstkomandi.

Vinna á byggingarstað/hönnunarstofu
Iðnmenntaðir þátttakendur fari á byggingarstaði að vinna við ákveðin verkefni tímabundið að námskeiði loknu. Hugmyndir um verkefni eru t.d. Laugavegur 4-6, Gröndalshús (Vesturgata 16B) og Norðurpóll (Hverfisgata 125) svo eitthvað sé nefnt. Hönnuðir fari í tímabundna vinnu til þeirra hönnunarstofa sem verða valdar til þess að hanna þau verkefni sem á að endurgera.

Umsóknareyðublöð má nálgast hér >>>