Hverfisgata 124 – Norðurpóllinn
 Norðurpóllinn stóð áður við |
 Hverfisgötu 125
|
Norðurpóllinn er byggður 1904 og er hann bárujárnsklætt timburhús, að mestu óbreytt frá 1920. Húsið hefur menningarsögulegt gildi og var sýnilegur þáttur í sögu Laugavegar sem aðkomuleiðar inn í bæinn. Í húsinu var rekin ein fyrsta veitingastofa bæjarins.
Staðsetning: Framtíðarstaðsetning verður að Laugavegi 124.
Lýsing:
Húsið er tilbúið til flutnings en fyrir liggja samþykktar byggingarnefndarteikningar vegna flutning þess á lóðina Laugavegi 124. Samkvæmt samþykktu deiliskipulagi fyrir Bankareit, sunnan Hlemms, er gert ráð fyrir því að það verði staðsett á núverandi bílastæði norðan við útitbú ArionBanka.
Framkvæmdin 2011 snýst um að byggja kjallara undir húsið, koma því fyrir á honum og svo klára frágang þess innanhúss.
Verkáfangar: Húsið Norðurpóllinn er var hluti af verklegu kennslu undirbúningsnámskeiðs Völundarverks í október til nóvember 2009. Starfsmenn Völundarverks mældu það upp og teiknuðu. Gerðu það upp að utan og var því lokið í nóvember 2009. Húsið stendur nú og bíður flutnings við hverfabækistöð Reykjavíkurborgar að Stórhöfða 9.
Tímaáætlun: Áætlað að verkinu ljúki í ársbyrjun 2012.
Verkkaupi: Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar
Fjárveiting: Varið verður 50 mkr. til verksins á árinu 2011.
Verkefnisstjóri undirbúnings og hönnunar hjá MASK: Rúnar Gunnarsson (runar.gunnarsson@reykjavik.is)
Uppfært 24. ágúst 2011