Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Upplýsingar um gagnaúttekt

Gögn LUKR eru geymd í landshnitakerfinu ISN93.  Það byggist á keiluvörpun Lamberts með tveim snertibaugum, í 64° 15' og 65° 45'.  Úttektarkerfið býður einnig upp á að varpa gögnunum yfir í Reykjavíkurhnitakerfið en það kann að lengja lítillega þann tíma sem fer í vinnslu úttektar.
Núverandi úttektarform gagna miðast við afhendingu á shape-formi (.shp) og dxf-formi (.dxf).

Kostnaður:
Fyrir hverja afgreiðslu á úttektarsíðunni er greitt svokallað afgreiðslugjald, sem er nú kr. 2200,- án vsk.  Einni afgreiðslu telst lokið þegar smellt er á hnappinn "Klippa gögn".  Fyrir afnot af gögnum LUKR skal auk þess greiða gagnagjald, sem er nú kr. 16,- á hvern hektara hvers gagnaþema LUKR.
Eitt þema er með lægra gjaldi: "Fast/hæðarmerki" með kr. 8,- á ha.  Ekki er greitt sérstaklega fyrir þemað "Strandlína".
Upphæðir eru án vsk.
Við útreikning á gagnagjaldi er notað flatarmál þess svæðis sem notandi afmarkar við úttekt.

Áskrift:
Unnt er að gerast áskrifandi að ákveðnum þemum með sérstökum áskriftarsamningi.  Ekki eru greidd gagnagjöld af gagnaþemum sem eru í áskrift en hins vegar er greitt afgreiðslugjald.
Stofngjald eins fullgilds gagnaþema er nú kr. 96.000,- og er veittur 15% afsláttur af 2. til 5. heila þemanu sem tekið er í áskrift, 30% af 6. til 10. þema og 45% af þemum umfram 10.
Landupplýsingadeild er heimilt að breyta stofngjaldi, afslætti og/eða prósentutölu áskriftargjalds.  Áskriftargjald er nú 15% af stofngjaldi án tillits til afsláttar.
Senda skal tölvupóst á lukr3w@reykjavik.is til að óska eftir áskrift.

Notkunarleyfi:
Notandi má afrita stafræn LUKR gögn yfir í tölvuminni eða tölvudiska og framleiða afleidd, stafræn gögn eða afurðir úr LUKR gögnum. Hann má aðeins nota framantalin gögn sjálfur eða starfsmenn hans, en má ekki afhenda þriðja aðila afrit af eða veita þriðja aðila aðgang að stafrænum LUKR gögnum og/eða afleiddum stafrænum gögnum/afurðum, nema með sérstökum samningi við Landupplýsingar á Framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkur.  Notanda er hins vegar heimil sala og dreifing afurða á pappírsformi, sem unnar eru úr stafrænum LUKR gögnum og gagnagjald hefur verið greitt af, en þau skilyrði eru sett, að á öllum slíkum afleiddum afurðum sé getið útgáfu- og höfundarréttar LUKR ("copyright") og einnig skal tilkynna Landupplýsingum um slíka útgáfustarfsemi.  Úttektarsamningurinn veitir notanda ekki rétt til að fá nýjar, uppfærðar og leiðréttar útgáfur af gagnasöfnum LUKR.

Ástand gagna:
Öll gögn eru afhent eins og þau eru á hverjum tíma í gagnasöfnum LUKR, þegar afhending fer fram. Gæði gagnanna eru mismunandi eftir uppruna, bæði hvað nákvæmni og áreiðanleika varðar. Brýnt er að leita staðfestingar viðkomandi stofnunar á nákvæmni einstakra þátta gagnanna, áður en þau eru lögð til grundvallar framkvæmdum. Landupplýsingar á Framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkur er ekki ábyrg fyrir beinu eða óbeinu tjóni, sem notandi kann að verða fyrir vegna notkunar LUKR gagna eða afleiddra gagna af þeim.

Grunngögn grannsveitarfélaga:
Grunnupplýsingar úr grannsveitarfélögum Reykjavíkur eru geymdar í LUKR og afhentar með leyfi viðkomandi sveitarfélaga, sem eru eigendur þeirra. Um þessar upplýsingar gilda almennir skilmálar vegna LUKR gagna einnig. Lagnir OR og Símans í þessum sveitarfélögum tilheyra gagnasöfnum LUKR, enda eru þessi fyrirtæki aðilar að LUKR. Athygli skal vakin á því að LUKR getur ekki sagt til um nákvæmni, uppfærslutíðni og flokkun þessara grunnupplýsinga. Notendum er því ráðlagt að snúa sér frekar beint til viðkomandi sveitarfélags, ef nefnd atriði skipta verulegu máli fyrir notkun þeirra og leita þar upplýsinga um gögnin.