Framkvæmdir

Framkvæmda- og eignasvið ber ábyrgð á öllum verklegum framkvæmdum sem tengjast mannvirkjum Reykjavikurborgar, húseignum hennar og gatnakerfi. Í því felst uppbygging þeirra, rekstur og viðhald. Undir Framkvæmda- og eignasvið heyra allar fasteignir borgarinnar, húseignir, lendur og lóðir.
Ákvarðanir um nýframkvæmdir eru teknar í samráði við fagsvið borgarinnar og samþykktar í borgarstjórn.
Smelltu á myndina til að skoða hana í fullri stærð
Myndin sýnir framkvæmda- og samþykktarferlið, en því má lýsa með eftirfarandi hætti:
Til grundvallar framkvæmdum hvers árs liggur samþykkt fjárfestingaáætlun fjárhagsáætlunar og til lengri tíma 3ja ára starfs- og fjárhagsáætlun. Samráðs- og samþykktarferli framkvæmda tekur mið af líftíma mannvirkja: Frá undirbúningsstigi þeirra þar sem stóru línurnar eru lagðar miðað við gefnar forsendur, yfir í hönnun og áætlanagerð þar sem ítarlegri útfærslur liggja fyrir, sem og kostnaðarútreikningar og til framkvæmdar. Á hverju þessara stiga er haft samráð við hagsmunaaðila, íbúa og notendur. Við lok hvers þáttar eru málin kynnt innan borgarkerfisins og eftir atvikum samþykkt í viðkomandi ráði. Þessir þrír áðurnefndu þættir mannvirkjagerðarinnar falla í skipuriti undir mannvirkjaskrifstofu. Þegar mannvirki er tilbúið færist ábyrgð á umsjón með mannvirkinu yfir til skrifstofu gatna- og eignaumsýslu sem sér um rekstur og viðhald. Þar koma inn samskipti við notendur mannvirkisins og tekið er við ábendingum frá íbúum og notendum.
Til að tryggja endurgjöf um hvernig til hefur tekist með gerð mannvirkisins hafa verið stofnuð fagteymi og innan þeirra bygging upp öflugri þekking á sviðimannvirkjagerðar. Fagteymin eru tvö - annað vegna gatnagerðar og borgarlands og hitt vegna húseigna og lóða. Þessum fagteymum er ætlað að vinna úr ábendingum og koma úrbótahugmyndum í framkvæmd. Minni háttar mál eru löguð án frekari umræðu, en viðameiri mál fara ýmist inn í hönnun og áætlanagerða eða ef þau eru viðameiri til ítarlegri undirbúnings. Þegar mál eru komin á það stig lúta þau sömu kröfum um samþykktir ráða og aðrar nýframkvæmdir. Þetta er hluti af gæðastarfi vegna framkvæmda og má segja að gæðahringurinn sé innbyggður í samskiptalíkanið. Gæðahringurinn er í fjórum fösum. Í fyrsta lagi undirbúningur, hönnun og áætlanagerð; í öðru lagi framkvæmdin sjálf, í þriðja lagi rekstur og viðhald og í fjórða lagi endurmat.