Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Kort og mælingar

Landupplýsingar á Framkvæmda- og eignasviði hafa mikla reynslu í gerð margvíslegra korta, sem öll byggja á upplýsingum úr Landupplýsingakerfi Reykjavíkur (LUKR). Eins og sjá má í upptalningunni hér að neðan eru ýmis kort gefin út samhliða lifandi upplýsingum á vefnum og þar vekjum við sérstaka athygli á Borgarvefsjá.


Kort til almenningsnota

Götukort

Götukort Framkvæmda- og eignasviðs (6,1 MB) nær yfir allt höfuðborgarsvæðið. Hægt er að fá þetta kort á pappírsformi hjá Framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkur, Borgartúni 12-14. Útprentun er í stærðinni A0 og kostar kr. 2400.

Stígakort

Göngu- og hjólreiðastígar. Vefsíða með korti af stígum í Reykjavík.
(Unnið af Hönnun fyrir Skrifstofu gatna- og eignaumsýslu).

Staðgreinikort

Staðgreinikort (5Mb PDF) af Reykjavík

Grunnkort

Grunnkort Framkvæmda- og eignasviðs. Sýna nú stöðu LUKR gagna 1. desember 2009 og eru endurnýjuð árlega. Grunnkort frá 2008 má einnig skoða hér með loftmyndagrunni undir.

Fastmerkjakort

Fastmerkjakort Framkvæmda- og eignasviðs. Yfirlitskort með öllum fast- og hæðarmerkjum í Reykjavík.


Upplýsingakort vegna þjónustu Framkvæmda- og eignasviðs

Brúnsteinar

Verndun brústeina (2,1Mb PDF) í Reykjavík. Brústeinar eru gamlir tilhöggnir kantsteinar.

Sniðtalningar

Sniðtalningar (1,6Mb PDF) í Reykjavík.
Sniðtalningar eru á vegum Umhverfis- og samgöngusviðs.

Snjóhreinsun

Snjóhreinsun gatna og gönguleiða. Vefsíða með kortum af götum og gönguleiðum Reykjavíkur eftir þjónustuflokkum í snjóhreinsun og hálkueyðingu.


Kort gerð eftir þínum óskum

Sérkort

Landupplýsingar á Framkvæmda- og eignasviði geta útbúið kort eftir séróskum viðskiptavina, allt frá einföldum yfirlitsmyndum til nákvæmra korta svo sem hér sést (0,3Mb PDF). Fyrirspurnir má senda á netfangið lukr@rvk.is.

Úttekt

Gagnagrunnar LUKR. Hönnuðir geta fengið aðgengi að LUKR-grunnum.
Sótt er um tengingu í gegnum netfangið lukr3w@rvk.is.


Veflausnir

Borgarvefsjá

Í Borgarvefsjá er hægt að skoða lifandi kort af Reykjavík og nágrenni.
Þar er einnig Tímavél sem sýnir ákveðin LUKR gögn aftur til ársins 1999.

Skipulagssjá

Einnig er rétt að minna á Skipulagssjá sem er á vegum Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur. Á vef þeirra má einnig nálgast önnur kort svo sem húsverndarkort og Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024.


Hnita- og hæðaskrá

Hnita- og hæðaskrá á pappírsformi fæst í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14,
s. 411 1111. Hnit og hæðir á einstökum hnit- og hæðarpunktum fást símleiðis eða í tölvupósti hjá Landupplýsingadeild Framkvæmda- og eignasviðs.


Mæliblöð

Mæliblöð lýsa legu og stærð lóða og gildandi mörkum eigna og umráðasvæða. Á mæliblaði skal sýna byggingarreit og þær kvaðir sem eru í gildi á viðkomandi svæði, svo sem vegna samþykktra mannvirkja eða veitukerfa. Mæliblöð eru yfirleitt í mælikvarðanum 1:500. Landupplýsingadeild Framkvæmda- og eignasviðs annast gerð og útgáfu mæliblaða. Þjónustuver Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, s. 411 1111, sér um varðveislu og afgreiðslu mæliblaða. Einnig má skoða og prenta út mæliblöð í Borgarvefsjá.


Hæðarblöð

Á hæðarblöðum er gerð grein fyrir hæðum á lóðamörkum. Annars vegar er um að ræða hæðir á mörkum borgarlands og lóða og hins vegar hæðir milli samliggjandi lóða. Einnig er á hæðarblöðum gerð grein fyrir staðsetningu og hæð frárennslisheimæða og staðsetningu kaldavatnsheimæða. Auk þess er sýnd staðsetning inntaks rafmagns, hitaveitu og síma. Mannvirkjaskrifstofa annast gerð og útgáfu hæðarblaða. Þjónustuver Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, s. 411 1111, fer með varðveislu og afgreiðslu hæðarblaða. Einnig má skoða og prenta út hæðarblöð í Borgarvefsjá.