Um sviðið

Hlutverk Framkvæmda- og eignasviðs er að annast stofnframkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar í samráði við fagsvið borgarinnar, annast hönnun þeirra og byggingu. Eftir að mannvirki hafa verið tekin í notkun sér Framkvæmda- og eignasvið um rekstur þeirra og viðhald. Sviðið annast einnig gerð leigusamninga fyrir fagsvið. Þá er það hlutverk þess að gera þjónustusamninga um hvers kyns rekstur og átaksverkefni sem falla að eignarekstrinum og þykja hagkvæm fyrir Reykjavíkurborg. Kaup og sala eigna er einnig á hendi sviðsins, þar með talin landakaup og úthlutun lóða ásamt sölu byggingaréttar.
Framkvæmda- og eignasvið annast gerð lóðaleigusamninga og heldur utan um upplýsingar vegna landsskrár fasteigna í samvinnu við Skipulags- og byggingarsvið. Landupplýsingadeild Framkvæmda- og eignasviðs annast útgáfu mæliblaða, landmælingar og rekstur Landupplýsingakerfis Reykjavíkur (LUKR).
Frá sameiningu Skipulagssjóðs og Framkvæmda- og eignasviðs árið 2008 gegnir Framkvæmda- og eignasvið einnig því hlutverki sem Skipulagssjóður hafði með höndum á afmörkuðum skipulagsreitum þar sem sértækra aðgerða er þörf.
Verkefni
Verkefni Framkvæmda- og eignasviðs eru mjög fjölbreytt. Sviðið sér um byggingu skóla og leikskóla, gatnakerfi borgarinnar og það sem því tilheyrir: viðhald og rekstur gatna, hreinsun, umferðarljósin, snjómokstur og hálkueyðingu. Að auki má nefna endurgerð húsa, gatna og stíga og opinna svæða, svo og þátttöku í uppbyggingu og viðhaldi eldri borgarhverfa.
Hrólfur Jónsson (hrolfur.jonsson@reykjavik.is) er sviðsstjóri Framkvæmda- og eignasviðs. Aðstoðarsviðsstjóri er Kristín Einarsdóttir. Starfsmenn sviðsins eru 211 talsins og skiptist starfsemin í eftirfarandi skrifstofur og deildir:
Heimilisfang:
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Sími: 411 11 11
Netfang: fer@reykjavik.is
Kennitala: 570480-0149
