Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fjárhagsáætlun

Fjárhags

Rekstur (þkr.) Áætlun 2010 Fjárfesting (þkr.) Áætlun 2010
Rekstrartekjur (14.139.909) Byggingaframkvæmdir 2.500.000
Söluhagnaður eigna (419.800) Gatnaframkvæmdir 2.055.000
Rekstrargjöld 5.576.621 Áhöld tæki og hugbúnaður 85.000
Afskriftir 2.416.361 Lóðir lönd og skipulagseignir 500.000
Fjármunatekjur/(gjöld) 4.302.703 Endurbætur og meiriháttar viðhald 300.000
Rekstrarniðurstaða (2.264.024) Fjárfestingar samtals: 5.440.000
Gatnagerðargjöld (200.000)
Fjárfestingar nettó 5.240.000


Framkvæmda- og eignasvið er rekið í eignasjóði og fær ekki bein framlög úr aðalsjóði heldur er byggt á tekjum af innri leigu og þjónustusamningum, sölu byggingaréttar, gatnagerðargjöldum og það sem upp á vantar til fjárfestinga er fjármagnað með lánum. Rekstrarafgangi er ráðstafað til aðalsjóðs til að greiða niður lán. Á myndinni hér að neðan sést fjárstreymi aðalsjóðs og eignasjóðs.

Aðalsjóður
Smelltu á myndina til að skoða hana í fullri stærð.


Megináherslur 2010 - breytingar frá fyrra ári

Endurmat á eignum Eignasjóðs
Á árinu 2010 mun Framkvæmda- og eignasvið láta endurmeta eignir Eignasjóðs. Slíkt hefur ekki tíðkast undanfarin ár og mikilvægt að slíkt mat fari fram.

Tengsl framkvæmda og innri leigu
Á árinu 2010 mun Framkvæmda- og eignasvið skerpa á því verklagi að þegar kostnaður við framkvæmd er kynntur til samþykktar sé innri leiga jafnframt kynnt og samþykkt.

Verkbókhald og gæðastjórnun
Innleiðing verkbókhalds hefur gengið vel hjá Framkvæmda- og eignasviði og á árinu 2010 er miðað við að lokið verði innleiðingu verkbókhaldsins. Verkbókhaldið hefur þegar skilað árangri og á árinu verður enn betur hægt að veita aðhald í kostnaði einstakra verka. Undanfarin ár hefur mikið verið unnið að gæðamálum hjá Framkvæmda- og eignasviði. Árið 2010 verður haldið áfram á þeirri braut með sérstaka áherslu á gæðastjórnun í mannvirkjagerð. Framkvæmda- og eignasvið stefnir að vottun á næstu árum og er það eðlilegur áfangi í auknu gæðastarfi sviðsins þar sem aðferðir verkefnastjórnunar hafa fengið meira vægi.

Rekstur og viðhald gatna og opinna svæða
Rekstur gatna, gönguleiða og opinna svæða er í höndum Framkvæmda- og eignasviðs með þjónustusamningi við Umhverfis- og samgöngusvið. Gert er ráð fyrir að sú fjárhæð sem sett er í rekstur gatna á árinu 2010 verði nokkuð lægri en áætluð var fyrir árið 2009. Bæði vegna lækkunar fjárveitingar og hækkana á verðlagi á árinu 2009 þýðir þessi ákvörðun minni þjónustu á árinu 2010 en var árið 2009. Ef verðlagsforsendur breytast frá því sem áætlað er þarf að skerða þjónustu enn frekar. Ákvörðun um þjónustustig er tekin af umhverfis- og samgönguráði.

Samræming í leigu og gjaldtöku vegna notkunar á borgarlandi
Algengt er að heimiluð séu afnot af borgarlandi til lengri eða skemmri tíma til ýmiss konar notkunar. Á árinu 2010 verða mótaðar samræmdar reglur um leigu og gjaldtöku fyrir slíka notkun.

Gjaldtaka vegna móttöku úrgangs á Hólmsheiði
Á Hólmsheiði hefur verið tekið á móti óvirkum úrgangi sem notaður hefur verið til landmótunar. Á árinu 2010 mun borgin hefja gjaldtöku fyrir móttöku þessa úrgangs. Sú framkvæmd er í takt við móttöku annars úrgangs á höfuðborgarsvæðinu, t.a.m. Sorpu sem tekur við úrgangi gegn gjaldi.

Skil á húsnæði og innri leiga.
Unnið verður að innleiðingu reglna um innri leigu húsnæðis sviða og stofnana borgarinnar sem fela í sér hvata til þess að nýta húsnæði betur og minnka við sig húsnæði ef mögulegt er.

Samsetning leigu

Innri leiga felur í sér margvíslegan kostnað og þjónustu. Í leigunni eru lögbundnar tryggingar og opinber gjöld, svo sem fasteignagjöld.

Fjármagnskostnaður er 4% af stofnkostnaði og afskriftir 2%. Hlutfall viðhaldskostnaðar er mismunandi eftir gerð mannvirkis, er 1,5% þegar um húsnæði er að ræða.

Umsýsluþóknun er einnig hluti af leigunni, en hún fer til rekstrar Framkvæmda- og eignasviðs.

Samsetning leigunnar er mis­munandi eftir því hvort um er að ræða hús eða götur. Í götum þarf að gera ráð fyrir endurfjármögnun vegna endurnýjunar eftir 25 ár, en í húsum hefur fjármagnskostnaður verið greiddur eftir 50 ár, eins og gert er ráð fyrir í þessu líkani.