Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Gæðastefna

Á hjóli

Lögð er höfuðáhersla á gæði þeirrar þjónustu sem Framkvæmda- og eignasvið innir af hendi. Sviðið hefur gæði, áreiðanleika og arðsemi af starfsemi sinni að leiðarljósi til að tryggja árangursríkt starf.

Leiðarljós Framkvæmda- og eignasviðs er að gæta hagkvæmni í framkvæmdum og rekstri, leitast við að gæði mannvirkja verði sem mest miðað við tilkostnað og stuðla að því að Reykjavík verði vistvæn og fögur borg, umgjörð góðs mannlífs og öflugrar atvinnustarfsemi.

Framkvæmda- og eignasvið gerir sér grein fyrir mikilvægi þess að tileinka sér framtíðarsýn Reykjavíkurborgar: ,,Reykjavík er alþjóðleg borg þar sem lífsgæðum, óskum og þörfum borgarbúa er skipað í öndvegi.”

Gæðaráð samhæfir og stjórnar aðgerðum á sviði gæðamála. Áhersla er lögð á að starfsmenn þekki og tileinki sér gæðastefnu sviðsins.

Gæðastefna Framkvæmda- og eignasviðs er:

Að vera traust og ábyrg starfseining, sem veitir viðskiptavinum sínum aðgang að fullnægjandi upplýsingum og góðum mannvirkjum.
Að veita viðskiptavinum sínum hraða, sveigjanlega og hagkvæma þjónustu.
Að uppfylla kröfur um hollustu, öryggi og umhverfi.
Að vinna eftir ströngum reglum við kaup og notkun á vörum og þjónustu.
Að uppfylla kröfur sem lög , reglugerðir og samþykktir Reykjavíkurborgar gera til starfsemi sviðsins hverju sinni.
Að verkefnum Framkvæmda- og eignasviðs mun ávallt verða sinnt þannig að tryggt sé að þau megi rekja.
Að reka gæðakerfið í samræmi við ISO 9001 og stefnir sviðið að vottun þess og að bæta virkni kerfisins.

Að leggja metnað sinn í að hafa ávallt á að skipa þjálfuðu, hæfu og ánægðu starfsfólki og að leggja áherslu á að dreifa ábyrgð til allra starfsmanna.