Landfyllingar

Framkvæmda- og eignasvið hefur undirbúið og lagt til að hafist verði handa við landfyllingar annars vegar í Gufunesi og hins vegar í Ánanaustum. Vegna framkvæmda í borginni er mikilvægt að geta tekið við efni sem til fellur á sem flestum stöðum í borginni, bæði til að spara akstur, en einnig eru mikil verðmæti fólgin í því að geta nýtt burðarhæft efni til landfyllinga.
Gufunes
Samkvæmt aðalskipulagi var gert ráð fyrir landfyllingum í Gufunesi. Umhverfismati fyrir fyllingarnar er lokið (skýrsla / tengill / er þegar á netinu). Um er að allt að 20 ha landfyllingu og samkvæmt aðalskipulagi verður landið nýtt undir íbúðabyggð. Framkvæmdirnar þarf að vinna í nánu samráði við Faxaflóahafnir, en höfnin á landið á þessu svæði ásamt Geldinganesi. Reykjavíkurborg er hins vegar handhafi lóðaleigusamnings í Gufunesi og þar með með yfirráðaréttinn yfir landinu.
Ánanaust
Fyrir liggur tillaga um að hefja framkvæmdir við 3,5 ha fyllingu í Ánanaustum. Á sínum tíma var gerð tillaga um að bæta sjóvarnir á svæðinu og fékk Framkvæmda- og eignasvið framkvæmdaleyfi til að hefja slíkar framkvæmdir. Við nánari skoðun var talið heppilegra að gera þarna 3,5 ha landfyllingu sem mundi þá virka jafnframt sem aukin sjóvörn. Samkvæmt gildandi aðalskipulagi er gert ráð fyrir að við Ánanust komi allt að ???? stór landfylling.
Við þessa breytingu settu íbúar fram mótmæli og bentu m.a. á að ekki ætti að hefja uppbyggingu á fyllingu þarna fyrr en eftir 2012. Á móti var bent á að ef hefja á uppbyggingu á svæðinu eftir 2012 þarf að byrja fyllingu á svæðinu. Framkvæmda- og eignasvið taldi brýnt að hefja fyllingu þarna þar sem efni sem féll til vegna byggingar bílakjallara við tónlistar- og ráðstefnuhús mætti nota í fyllinguna.
Nú er lagt til að koma framkvæmdum af stað við landfyllingu í Ánanaustum. Bæði er að nauðsynlegt er að geta tekið við efni á sem flestum stöðum í borginni til að spara akstur, en eins eru mikil verðmæti fólgin í því að geta byggt fyllingar á efni sem til fellur. Skipulags- og byggingarsviði ásamt Framkvæmda- og eignasviði verði falið að taka málið upp við skipulagsstofnun með það fyrir augum að hefja fyllingar á þessum stað.