Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Snjóhreinsun og hálkueyðing

Snjómokstur

Markmið Reykjavíkurborgar er að veita skilvirka og hagkvæma vetrarþjónustu, sem stuðlar að öryggi vegfaranda og íbúa borgarinnar.

Snjóhreinsun og hálkueyðing

Snjóhreinsun: Snjór er hreinsaður af götum og gönguleiðum með snjóruðningstækjum.
Hálkueyðing: Snjóruðningstæki borgarinnar dreifa salti eða sandi á götur og gönguleiðir.

Forgangsröðun

Götur: Í stuttu máli má segja að stofnbrautir, strætóleiðir og fjölfarnar safngötur njóti forgangs. Miðað er við að stofnbrautir og strætóleiðir séu færar kl. 7 að morgni og að hreinsun annarra gatna sé lokið fyrir kl. 8. Húsagötur eru þó ekki ruddar nema þær séu þungfærar einkabílum. (Sjá nánar texta neðst á þessari síðu.)

Gönguleiðir: Mikilvægustu göngu- og hjólastígar milli borgarhluta fá forgang í hreinsun og síðan megingönguleiðir að strætóskýlum og skólum og eiga þær að vera greiðfærar fyrir kl. 8. Sandur er notaður til að draga úr hálku á gönguleiðum en ekki salt eins og á akstursleiðum.

Ábendingar og nánari upplýsingar

Símaver Reykjavíkurborgar í síma 411 1111.

Umsjón:

Þjónustumiðstöðin að Stórhöfða 9 hefur umsjón með snjóhreinsun og hálkueyðingu gatna og gönguleiða í borginni samkvæmt ákveðinni forgangsröðun.

Þjónustuflokkar

1. Helstu stofnbrautir og mikilvægar tengigötur vegna neyðarþjónustu
2. Aðrar stofnbrautir, fjölfarnar safngötur og allar strætisvagnaleiðir, sem ekki eru í 1.a
3. Aðrar safngötur
4. Húsagötur og fáfarnar safngötur

Yfirlit yfir þjónustustig

Þjónustu-

Flokkur

Þjónustu-

tími

Viðbragðs-

tími

Hreinsun-

artími

Snjódýpt

við byrjun

aðgerða

Mesta

snjódýpt

Lágmarks-

viðnám

Útsýni

takmarkað

klst

klst

cm

cm

sólarhr.

1

07-22

0,5

2

2

5

0,25

1

2

07-22

1,0

3

5

10

0,25

1

3

08-21

1,5

3

7

12

0,25

1

4

08-21

15

B

08-17

G1a

07-18

1,0

5 / 4

G1

08-18

1,0

5 / 4

G2

12-18

1,0

10 / 8

G3

Innan 24 klukkustunda

G4

Snjóhreinsun síðar

Skilgreiningar á hugtökum í töflu:
Þjónustutími: Sá tími innan sólarhringsins sem reikna má með að helstu umferðargötur borgarinnar séu færar.
Viðbragðstími: Áætlaður tími sem líður frá því að tilkynning berst frá stjórnstöð þar til aðgerðir hefjast.
Hreinsunartími: Áætlaður tími sem líður frá því að aðgerðir hefjast þar til fyrstu yfirferð lýkur í viðkomandi þjónustuflokki.
Útsýni takmarkað: Í þjónustuflokkum eitt til þrjú má útsýni vera takmarkað af snjóruðningi að hámarki í einn sólarhring.

Í Handbók um vetrarþjónustu eru skilgreiningar á þjónustumarkmiðum og þjónustustigi hvers þjónustuflokks. Þjónustulýsingin á við venjulegar vetraraðstæður, en á ekki við meðan óveður gengur yfir. Við slíkar aðstæður miðast þjónustan við að halda helstu stofnbrautum og strætisvagnaleiðum opnum ásamt aðgengi að sjúkrahúsum eins og kostur er.

Húsagötur og fáfarnar safngötur:

Húsagötur eru því aðeins hreinsaðar að þær séu þungfærar einkabílum, mikil hálka, eða snjódýpt meiri en 15 cm. Snjóhreinsun takmarkast við að gera þessar götur akfærar og við hálkueyðingu er aðeins notaður sandur.

Við snjóhreinsun húsagatna er líklegt að við innkeyrslur myndist snjóruðningar, sem Reykjavíkurborg sér ekki um að hreinsa. Það fellur því í hlut íbúanna sjálfra að hreinsa burt snjó úr innkeyrslum.

Settir eru upp saltkassar í þeim húsagötum þar sem aðstæður eru sérlega erfiðar, til dæmis í bröttum brekkum. Símaver Reykjavíkurborgar veitir nánari upplýsingar í síma 411 1111.